Humarsúpan sem þykir stórkostleg

Ljósmynd/Linda Ben

Humarsúpur eru eitt það allra besta og vandaðasta sem hægt er að bjóða upp á. Hún er bæði fullkominn forréttur í vönduðu matarboði auk þess sem hún er dásamlegur aðalréttur í aðeins meira hversdagslegu matarboði.

Alla vega er galdurinn að vera með réttu uppskriftina og hér er ein algjörlega stórkostleg frá Lindu Ben.

Ljúffenga humarsúpan sem er einfaldari en þig grunar
  • 1 stk. blaðlaukur, miðjuhlutinn
  • 3 stk. gulrætur
  • 1 stk. sellerístilkur
  • 2 stk. rauðar paprikur
  • 1-2 stk. hvítlauksgeiri (einn stór, annars tveir)
  • 1 ½ msk. tómatmauk
  • 1 ½ tsk. madras karrý
  • 3 msk. fljótandi humarkraftur frá Oscar
  • 1 ½ msk. fiskikraftur frá Oscar
  • 1 lítri vatn
  • 400 ml dós kókosmjólk
  • 2 dl hvítvín
  • 250 ml rjómi
  • u.þ.b. 800 g skelflettur humar
  • Salt og pipar
  • 250 ml þeyttur rjómi
  • Fersk steinselja
Aðferð:
  1. Skerið allt grænmetið niður fyrir utan hvítlaukinn, setjið olíu í stóran pott og steikið grænmetið á meðalhita þar til það er farið að mýkjast. Skerið þá niður hvítlaukinn og bætið honum út á ásamt karrý og tómatmauki. Bætið vatninu, kókosmjólkinni og hvítvíninu í pottinn og maukið grænmetið saman við með töfrasprota. Látið sjóða.

  2. Þegar súpan hefur soðið saman rólega í u.þ.b. 5 mín. bætið þá kraftinum saman við og haldið áfram að sjóða í nokkrar mín.

  3. Bætið því næst út í rjómanum og hitið að suðu. Setjið humarinn út í súpuna, passið að láta súpuna ekki sjóða eftir að humarinn hefur verið settur út í. Smakkið til með salti og pipar.

  4. Berið fram með þeyttum rjóma og ferskri steinselju.

Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert