Súrdeigsbrauð ársins valið

Súrdeigsbrauðið sem bar sigur úr býtum ásamt verðlaunagripnum.
Súrdeigsbrauðið sem bar sigur úr býtum ásamt verðlaunagripnum. Ljósmynd/Aðsend
Keppninn um besta súrdeigsbrauðið fór fram á dögunum og eftir harða baráttu var það veitingastaðurinn The Coocoo's Nest sem bar sigur úr býtum. 
Það var engin önnur en Frú Eliza Reid, forsetafrú sem afhenti verðlaunin en það voru aðstandendur tímaritsins Fæða|Food - A Little Taste of Iceland stóðu fyrir keppninni í tilefni af því að fjórða tölublað tímaritsins er væntanlegt. Eitt aðalþema næsta tölublaðs er bakstur og íslenskar hefðir sem tengjast bakstri. Meðal efnis er íslenska flatkakan, endurkoma brauðtertunnar, veisluhefðir landans, íslenskt kaffibrauð og byltingin sem orðið hefur í súrdeigsbakstri á Íslandi.

Viðbrögðin við keppninu voru að sögn aðstandenda framar björtustu vonum. Tíu bakarí af öllu landinu skráðu sig í keppnina og mátti hvert bakarí aðeins senda inn eitt brauð, sem annað hvort væri í sölu eða yrði til sölu eftir keppnina og þurfti að uppfylla ákveðnar gæða kröfur. Að morgni keppnisdags streymdu brauðin inn bæði með flugi og strætó!

Dómnefndin gaf einkunn út frá bragði, þéttleika, skorpu, ilmi, útliti o.fl. Almennt var dómnefndin mjög sátt við gæðin á súrdeigsbrauðunum sem voru send inn en þrjú brauð voru þó stigahæst.
The Coocoo’s Nest - Reykjavík - bakari: Lucas Keller frá Bandaríkjunum
Litla brauðstofan - Hveragerði - bakari: Dörthe Zenker frá Þýskalandi
Sandholt bakarí - Reykjavík - bakari: Bashir Mirafghan
frá Afganistan

Brauð The Coocoo’s Nest bar sigur úr býtum enda þótti það listilega vel gert brauð, einstaklega fallegt, ilmríkt og bragðgott. Svo gott að fólk ætti að gera sér ferð út á Granda til að næla sér í eitt slíkt.

Sérstaka viðurkenningu hlaut Sigfús hjá Brauðhúsinu Grímsbæ fyrir framúrskarandi brauð og fyrir að vera brautryðjandi í súrdeigsbakstri á Íslandi - en brauðið frá Brauðhúsinu var eina heilkorna formbrauðið sem sent var inn og því töluvert ólíkt hinum brauðunum í keppninni.
Bakararnir í efstu þemur sætunum ásamt Frú Elizu Reid.
Bakararnir í efstu þemur sætunum ásamt Frú Elizu Reid. Ljósmynd/Aðsend
Frú Eliza Reid afhendir Lucas Keller á Coocoo´s Nest verðlaunin.
Frú Eliza Reid afhendir Lucas Keller á Coocoo´s Nest verðlaunin. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert