Exótísk súpa sem rífur í

Súpur eru það besta fyrir kroppinn í kuldanum.
Súpur eru það besta fyrir kroppinn í kuldanum. mbl.is/Alt.dk_Maria Warnke Nørregaard

Við heilsum vetrinum og við heilsum þessari yndislegu súpu sem við þurfum sannarlega á að halda þessa dagana. Hér er bragðmikil súpa á ferð sem fyrirbyggir allar kvefpestir sem reyna að komast að á þessum köldu dögum.

Exótísk súpa sem rífur í

  • 1 msk. maísolía
  • 1 lítill laukur, smátt saxaður
  • 1 stórt hvítlauksrif
  • 250 g gulrætur, skornar niður
  • 1 kartafla, skorin í teninga
  • 1 rautt chili, smátt skorið
  • 2 cm nýrifið engifer
  • 1-2 tsk. rautt karrýpúrre
  • 50 g rauðar linsubaunir
  • ¾ - 1 L grænmetis- eða kjúklingakraftur
  • Salt og pipar

Sterk jógúrt:

  • 2 dl grísk jógúrt, 10%
  • ½ - 1 tsk. kúmmen
  • Ca. ½ gúrka, rifin niður
  • 25 g grófhakkaðar og ristaðar heslihnetur
  • 2 msk. fersk mynta, smátt söxuð

Annað:

  • 4 heilhveitipítur
  • 1 msk. ólífuolía til penslunar
  • T.d. kóríander og flögusalt

Aðferð:

  1. Hitið olíu í potti og steikið lauk, hvítlauk, gulrætur og kartöflur ásamt chili og engifer – og hrærið í.
  2. Bætið karrýpúrre út í ásamt linsubaunum og krafti. Látið malla á mjög lágum hita í 30 mínútur.
  3. Blandið vel í súpunni eða maukið og hitið aftur upp. Smakkið þá til með salti og pipar.
  4. Jógúrtdressing: Blandið öllum hráefnunum saman og smakkið til með salti og pipar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert