Pastarétturinn sem þjóðin féll fyrir

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Pasta klikkar aldrei - sérstaklega ekki ef um er að ræða uppskrift sem tekur 20 mínútur að laga og er frábær á bragðið. Það er Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari snilld en hún segir uppskriftina komna frá Lilly vinkonu hennar.

Lillý vinkona kann að elda ítalskan mat upp á 10 og þessi uppskrift kemur úr hennar smiðju. Hún hefur meira að segja áður orðið fræg en það var skorað á Lillý í Stykkishólmspóstinum um árið og þangað fór þessi dásemd. Nú kemur hún hins vegar hingað inn til þess að leyfa alþjóð að njóta hennar.

Þið getið stillt styrkleikann með magni af chili en það er einnig chilibragð af tómatmaukinu sjálfu svo hún rífur örlítið í en það fer einstaklega vel með rjómanum á móti.

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Sancho Panza „ala“ Lillý

Fyrir 4-6 manns

  • 500 g penne pasta
  • 50 g af grófu salti (til að sjóða pastað í, c.a 10 g fyrir hvern lítra af vatni)
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 1 msk. ólífuolía
  • 200 g beikon
  • 1 x ferna Cirio Polpa Fine tómatmauk með chili
  • ½ tsk. salt
  • ½ tsk. sykur
  • ¼ tsk. þurrkað chili
  • 500 ml rjómi
  • Parmesan ostur eftir smekk

Aðferð:

  1. Sjóðið penne pasta í saltvatninu. Það er nauðsynlegt að halda suðu í pottinum og hræra öðru hvoru svo pastað festist ekki saman.
  2. Á meðan pastað sýður er sósan útbúin.
  3. Klippið beikonið niður í litla bita og steikið upp úr ólífuolíunni ásamt hvítlauksgeirunum þar til það verður stökkt.
  4. Takið þá hvítlauksgeirana upp úr, þeir eru bara notaðir til að gefa fitunni auka bragð.
  5. Hellið tómatmaukinu út á pönnuna, kryddið til og hellið rjómanum saman við. Leyfið þessu að malla á meðan pastað er að verða tilbúið.
  6. Chili er missterkt svo gott er að nota það varlega í byrjun og bæta frekar við eftir smekk.
  7. Sigtið vatnið af pastanu og hellið því út á sósuna og blandið öllu varlega saman.
  8. Gott er að strá parmesan osti yfir í lokin og bera fram með góðu hvítlauksbrauði.

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...

Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert