Einkakokkur Opruh Winfrey opnar veitingastað

Kenny Gilbert hefur eldað ofan í Opruh Winfrey til margra …
Kenny Gilbert hefur eldað ofan í Opruh Winfrey til margra ára, en hann mun opna veitingastað í byrjun næsta árs. mbl.is/

Oprah Winfrey er alveg eins og við hin, fyrir utan það að vera tíður gestur í veislum hjá stórstjörnum, hún ræktar sitt eigið avocado á búgarði og er með einkakokk.

Kenny Gilbert, einkakokkur Opruh til margra ára, tilkynnti nú á dögunum að hann ætli að opna veitingastað sem muni innihalda mikið af grillmat og sjávarréttum á matseðlinum. Staðurinn kallast Cut & Gather og er fyrirhugað að hann opni fyrri hluta næsta árs, 2020.

Kenny er enginn nýgræðingur í matargerð en hann hefur eldað mat frá 7 ára aldri og lærði hann mestallt af föður sínum. Þegar hann var 11 ára gamall eldaði hann þakkargjörðarmáltíð fyrir alla fjölskylduna – aleinn!

Kokkurinn snjalli hefur unnið til ýmissa verðlauna í gegnum tíðina og hefur setið í dómarasæti Chopped Junior-þáttanna. Það leikur enginn vafi á því að Oprah muni láta sjá sig á veitingastaðnum og eflaust einhverjir gestir sem taka því fagnandi.

mbl.is/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert