Nauta enchiladas með beikoni, rjómaosti og jalapeno

Ljósmynd/Snorri Guðmundsson

Mjúkar hveiti tortillur fylltar með nautakjöti, beikoni, jalapeno og rjómaosti, toppaðar með bragðmikilli heimalagaðri enchiladasósu, bræddum osti og bornar fram með fersku lárperusalati. Svona lýsir hinn eini sanni Snorri Guðmundsson (matgæðingur og ljósmyndari með meiru) þessum rétti sem ætti að hitta í mark hjá um það bil öllum.

Hér erum við að tala um "comfort food" í hæsta gæðaflokki sem tikkar í öll réttu boxin og sendir engan svekktan frá matarborðinu.

Matarbloggið hans Snorra - Matur & Myndir er hægt að nálgast HÉR.

Nauta enchiladas með beikoni, rjómaosti og jalapeno

Þessi uppskrift er fyrir 3 eða 2 mjög svanga

Enchilada sósa:

  • Passata, 400 g
  • Kjúklingasoð, 2 dl
  • Hveiti, 2 msk
  • Smjör, 30 g
  • Chipotle mauk, 1 tsk
  • Kjúklingakraftur, 1 tsk
  • Hvítlauksduft, 1 tsk
  • Laukduft, 1 tsk
  • Oregano, 1 tsk
  • Cayenne pipar, 0,5 tsk
  • Salt eftir smekk

Enchiladas:

  • Ungnautahakk, 500 g
  • Beikon, 5 sneiðar
  • Litlar tortilla vefjur, 8 stk (1 pakki)
  • Tómatpúrra, 2 msk
  • Chipotle mauk, 1 tsk
  • Chunky salsa sósa, 230 g (1 krukka)
  • Rjómaostur, 50 g
  • Jalapeno, 15 g
  • Kjötkraftur, 1 tsk / Oscar
  • Kjúklingakraftur, 1 tsk / Oscar
  • Cumin, 1 tsk
  • Mexico fiesta, 2 tsk / Pottagaldrar
  • Pizzaostur, 100 g
  • Lárpera, 1 stk
  • Kirsuberjatómatar, 100 g
  • Kóríander, 5 g
Aðferð:
  1. Bræðið smjör í littlum potti og pískið hveiti saman við. Látið svo smjörbolluna eldast í 1-2 mín en hrærið stanslaust í.

  2. Bætið restinni af hráefnunum fyrir enchilada sósuna út í pottinn á látið malla rólega þar til sósan hefur þykkst aðeins. Smakkið til með salti og geymið undir loki.

  3. Stillið ofn á 180 °C með blæstri.

  4. Skerið beikon í bita. Hitið olíu á pönnu og steikið beikonbitana þar til þeir eru nánast fulleldaðir. Bætið hakki út á pönnuna og steikið þar til það er fulleldað.

  5. Saxið jalapeno og bætið út á pönnuna ásamt tómatpúrru og steikið í 2 mín. Bætið svo salsa sósu, chipotle mauki, rjómaosti, kjötkrafti, kjúklingakrafti, cumin og mexico fiesta kryddblöndu út á pönnuna og látið malla í nokkrar mín. Smakkið til með salti.

  6. Hitið tortilla vefjurnar í 30 sek í örbylgjuofni til að mýkja þær, en þá er auðveldara að rúlla þeim upp.

  7. Skiptið kjötblöndunni jafnt á milli tortilla vefjanna og rúllið þeim þétt upp. Leggið þær í eldfast mót og hellið svo enchilada sósunni yfir og meðfram þeim. Toppið með osti og bakið í miðjum ofni í 20 mín.

  8. Skerið tómata og lárperu í bita og saxið kóríander. Berið fram með til hliðar

Endilega taggið mig á instagram ef þið eldið frá mér uppskrift!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert