Oreo ostakaka sem grætir gourmet nagga

Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Hér gefur að líta rándýra fyrirsögn með ofgnótt G-a enda ekki vanþörf á þegar við erum með svona uppskrift í höndunum. Hér erum við með ostaköku sem inniheldur óhemjumagn af Oreo kexi. Meira þarf ekki að segja um það.

Það er hin eina sanna Berglind Guðmunds á GRGS.is sem á þessa snilld!

Oreo ostakaka

BOTN

  • 40 stk Oreokexkökur
  • 80 g smjör, brætt

FYLLING

  • 3 plötur matarlím
  • 225 g Philadelphia rjómaostur
  • 300 ml rjómi
  • 4 msk flórsykur

SÚKKULAÐISÓSA

  • 20 g súkkulaði
  • 30 ml rjómi

Aðferð:

1-3 Oreokex, mulin

1. Myljið kexin fyrir botninn fínt niður, t.d. í matvinnsluvél, eða látið í poka og berjið með kökukefli, hin fínasta útrás.

2. Takið 1⁄4 af kexinu og geymið. Blandið afganginum saman við brætt smjörið. Setjið í bökuform (24 cm) og þrýstið vel niður. Geymið í frysti á meðan þið gerið fyllinguna.

3. Leggið matarlímið í vatn. Hrærið rjómaostinn og bætið við 250 ml af rjóma og flórsykri og þeytið þar til þetta er orðið að þykkri blöndu. Hitið afganginn af rjómanum og bætið matarlíminu þar í (kreistið vatnið úr þeim áður). Matarlímið bráðnar í rjómanum. Kælið og hrærið síðan saman við fyllinguna og hellið yfir botninn. Geymið í kæli í a.m.k. 2 klst.

4. Súkkulaðisósa: Hitið rjóma og saxað súkkulaði í potti þar til blandan er orðin að súkkulaðisósu. Kælið lítillega og hellið svo yfir kökuna. Myljið Oreokex yfir allt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert