Hvernig hljómar hunangs-sojamarinering á laxinn sem borinn er fram með hvítlauksdressingu og bökuðu salati? Við erum í það minnsta til í að prófa, því það er ekkert í þessari uppskrift sem ekki er auðvelt að elska.
Marineraður lax með dressingu (fyrir 4)
Marinering:
- 3 msk. kikkoman-sojasósa
- 2 msk. hunang
- Safi og rifinn börkur úr ½ sítrónu
Bakað salat:
- 1 kg gulrætur
- 1 msk. ólífuolía
- Salt og pipar
- 2 dl grænar linsubaunir
Hvítlauksdressing:
- 1 stórt hvítlauksrif
- 1 dl hrein jógúrt
- 2 msk. ólífuolía
- 1 tsk. hunang
- Safi og rifinn börkur úr ½ sítrónu
- Salt og pipar
Annað:
- 50 g möndlur
- Handfyllli fersk steinselja
Aðferð:
Marinering:
- Blandið sojasósu, hunangi, rifnum sítrónuberki og ferskum sítrónusafa í skál.
- Leggið laxinn með roðið niður á við í smurt eldfast mót og makið marineringunni yfir laxinn. Setjið í kæli í minnsta kosti 30 mínútur og allt upp í 24 tíma.
Bakað salat:
- Hitið ofninn í 175°C.
- Skrælið gulræturnar og skerið í grófar skífur. Veltið þeim upp úr olíu og dreifið á bökunarpappír á bökunarplötu. Kryddið með salti og pipar og bakið í 30 mínútur þar til mjúkar.
- Sjóðið linsubaunirnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
Hvítlauksdressing:
- Pressið hvítlaukinn og blandið öllum hráefnum saman í dressingu.
Samsetning:
- Bakið laxinn í ofni í 10 mínútur. Takið fatið út og penslið aftur yfir með marineringunni á botninum á fatinu. Bakið áfram í ofni í 10 mínútur.
- Blandið saman linsubaununum við gulræturnar og hellið dressingu yfir.
- Ristið möndlurnar létt á þurri pönnu og saxið gróflega.
- Dreifið ristuðum möndlum og saxaðri steinselju yfir salatið og laxinn og berið fram.