Pasta fyrir lúxusletingja

Við elskum svona rétti, auðveldir og ekkert vesen.
Við elskum svona rétti, auðveldir og ekkert vesen. mbl.is/Sæson.dk

Var einhver að kalla eftir einföldum og bragðgóðum pastarétti? Þá er hann hér að finna. Öllu hent í einn pott og ekkert óþarfa umstang í uppvaski. Þetta er sannkallaður lúxusréttur. 

Allt í einum potti pasta (fyrir 4)

  • 2 msk. ólífuolía
  • 4 hvítlauksrif, marin
  • 1 laukur, smátt skorinn
  • 400 g kjúklingabringur skornar í þunnar skífur
  • 1 tsk. timían
  • 1 tsk. oregano
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • 1 tsk. salt
  • 1 krukka grillaðar paprikur, skornar gróflega
  • ½ ferskt chili eða jalapeno, skorið gróflega
  • 3 dósir hakkaðir tómatar
  • 2 dl rauðvín
  • 2,5 dl vatn
  • 450-500 g rigatoni pasta
  • 1 dl rifinn parmesan + aðeins meira
  • 25 g smjör
  • ¾ - 1 dl matvinnslurjómi
  • Þurrkaðar chiliflögur til skreytingar ef vill

Aðferð:

  1. Setjið stóran pott á helluna og hitið olíu rétt yfir meðalhita. Setjið hvítlauk og kjúklingabitana í pottinn og brúnið kjúklinginn án þess að hann fulleldist.
  2. Stráið þurru kryddinu yfir kjúklinginn.
  3. Setjið lauk, grillaðar paprikur og chili í pottinn og steikið áfram í nokkrar mínútur.
  4. Setjið tómatana úr dós út í ásamt víninu, vatni og pasta og látið sjóða í 15-20 mínútur. Hrærið jafnt í og bætið við vatni eftir þörfum.
  5. Lækkið í hitanum og setjið smjör og salt út í – og hrærið í.
  6. Setjið rjóma og parmesan-ost í pottinn og látið sjóða í 5 mínútur – hrærið í af og til.
  7. Takið pottinn af hitanum og stráið jafnvel meira af parmesan yfir ásamt chiliflögum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert