Þrjár leiðir til að bjarga kaffikönnunni

Kaffikannan eða kaffibrúsinn getur byrjað að lykta ef hann er ekki þrifinn reglulega. Hér bjóðum við upp á þrjú töfratrix til að losna við lyktina og brúsinn verður eins og nýr.

SALT

  • Setjið 1,5 dl af grófu salti í kaffikönnuna.
  • Fyllið könnuna til hálfs með sjóðandi heitu vatni.
  • Skrúfið lokið fast á og hristið könnuna vel.
  • Hellið vatninu og skolið könnuna.
  • Endurtakið 1x í mánuði til að halda könnunni lyktarlausri.

LYFTIDUFT

  • Setjið 2 msk. af lyftidufti.
  • Fyllið könnuna af sjóðandi heitu vatni.
  • Setjið lokið á könnunni í skál með lyftidufti og sjóðandi heitu vatni.
  • Látið hvort tveggja standa í 15 mínútur.
  • Hellið vatninu af og skolið.

SÍTRÓNUR

  • Pressið safa úr 1-2 sítrónum og hellið í kaffikönnuna.
  • Fyllið könnuna með sjóðandi heitu vatni og setjið lokið á.
  • Látið standa yfir nótt.
  • Skolið með vatni daginn eftir.
Ef það er komin sterk kaffilykt í brúsann þinn erum …
Ef það er komin sterk kaffilykt í brúsann þinn erum við með ráðin til að losna við lyktina. mbl.is/Colourbox
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert