Dúnmjúkt og nýbakað

Við elskum nýbökuð brauð og þetta er einstaklega djúsí.
Við elskum nýbökuð brauð og þetta er einstaklega djúsí. mbl.is/Colourbox

Hér uppskrift að brauði, stútfullt af kærleika, svo gott er það. Þetta brauð er hollt og umfram allt alveg svakalega mjúkt og bragðgott. Þessa brauðuppskrift tekur þó um 2-3 daga að baka, en það getur oft komið ser vel að baka í skömmtum. 

Dúnmjúkt og nýbakað (3-4 brauð)

Rúgblandan:

  • 150 g rúgur
  • 200 g kalt vatn
  • 30 g salt

Deig:

  • Rúgblandan hér fyrir ofan.
  • 80 g sólblómakjarnar
  • 50 g hörfræ
  • 80 g malað heilhveiti
  • 1,3 kg fínmalað spelthveiti
  • 15-20 g ger
  • 20 g sykur
  • 400 g súrmjólk við stofuhita
  • 500-600 g vatn

Aðerð:

Dagur 1:

  1. Hrærið öll hráenin saman í rúgblönduna og geymið í kæli yfir nótt.

Dagur 2:

  1. Hrærið öll hráefnin saman ásamt rúgblöndunni og hnoðið vel saman.
  2. Látið hvíla þar til deigið hefur tvöfaldað sig, gjarnan yfir nótt.

Dagur 2 eða 3:

  1. Formið deigið í 2-3 kúlur (eða eins og brauð).
  2. Látið hefast þar til deigið hefur tvöfaldað sig.
  3. Skerið rákir í deigið og bakið við 230° í sirka 30-35 mínútur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert