Bókin sem mun bjarga lífi þínu

Í Veislubókinni er vandlega farið yfir allt sem viðkemur veisluhaldi …
Í Veislubókinni er vandlega farið yfir allt sem viðkemur veisluhaldi og undirbúningi þess.

Hún er þekkt fyrir að baka kökur á heimsmælikvarða og halda veislur sem fá fólk til að fölna af aðdáun. Hún þykir jafnframt yfirmáta smekkleg og sniðug og nýjasta rósin í hnappagat hennar er bók um veisluhald þar sem hún ráðleggur fólki um að halda veislu án þess að verða galið eða gjaldþrota.

Við erum að sjálfsögðu að tala um Berglindi Hreiðarsdóttur á Gotteri.is og bókin heitir því viðeigandi nafni Veislubókin.

„Hugmyndin á bak við bókina er fremur einföld“, segir Berglind. „Ég hef í mörg herrans ár haft mikið gaman af því að halda veislur, deilt ýmsum ráðum með fylgjendum mínum á gotteri.is og aðstoðað vini og vandamenn við sínar veislur. Ég veit ekki hversu margar fyrirspurnir ég fæ reglulega með hitt og þetta tengt veislum og greinilegt er að þessar upplýsingar er erfitt að finna. Það er hægt að finna ýmsar upplýsingar hér og þar á veraldarvefnum en sumar bara alls ekki. Hugmyndin var því sú að ná öllu skipulagi fyrir veislur saman á einn stað til þess að auðvelda fólki undirbúning þeirra.“

Hentar öllum

Berglind segir að bókin ætti að henta öllum þeim sem halda veislur og vilja auðvelda sér lífið. „Svo er alltaf gaman að fá skemmtilegar hugmyndir þegar kemur að skipulagi,“ segir hún en í bókinni er að finna ítarlega gátlista fyrir veislur og viðburði enda í mörg horn að líta, þá ekki síst þegar halda á stóra veislu eins og brúðkaup. Reynt var að hafa uppskriftirnar við allra hæfi og með góðum leiðbeiningum þannig að allir ættu að ráða við hana, segir Berglind spurð hvort bókin sé á allra færi.

Sex ólíkir kaflar

Bókin er jafnframt sett upp á afar snjallan hátt. „Ég skipti henni niður í sex mismunandi veislukafla með ólíku þema og uppskriftum sem þó er hægt að nota allt í kross að sjálfsögðu. Veislukaflarnir skiptast niður í brúðkaup, útskrift, fermingu, skírn/nafngjafarathöfn, barnaafmæli og fullorðinsafmæli. Í hverjum kafla er svo gátlisti, ýmis hollráð sem tengjast undirbúningnum og ráðleggingar um magn af mat og drykk þegar kemur að veisluhöldum,“ segir Berglind, en það getur einmitt verið þrautin þyngri að áætla það magn sem þarf fyrir stóra veislu.

Ljóst er að bókin er mikill hvalreki fyrir þá sem hyggja á veisluhöld á næstunni enda getur það vafist fyrir fólki sem stendur ekki í slíkum stórræðum reglulega. Berglind segir að lykill sé fólginn í góðu skipulagi og þar komi gátlistarnir og hollráðin að góðum notum. „Ég tók í raun saman allt það sem ég hef lært og setti í bókina til að auðvelda fólki lífið. Þarna eru hugmyndir að alls konar veislum og veitingum og svo er hægt að blanda öllu saman að vild.“

Hægt að spara stórfé

Það segir sig sjálft að það getur verið gríðarlega kostnaðarsamt að halda veislu. Oft heldur fólk veislurnar í heimahúsi eða leigir sal. Sumir fara auðvitað þá leið að kaupa allar veitingar en það er samt sem áður í mörg horn að líta, sérstaklega þegar um stærri veislur á borð við brúðkaup og fermingu er að ræða. Ef fólk vill útbúa veitingarnar sjálft þarf að ákveða hvers kyns veitingar skuli vera á boðstólum, hvort blanda eigi saman keyptum og heimalöguðum veitingum, hvaða drykki eigi að bjóða upp á og þar fram eftir götunum. Í þessu er Berglind flinkari en flestir og hafa veislur sem hún hefur birt myndir af á bloggsíðunni sinni vakið mikla athygli.

Ekkert mál að halda veislu

Aðspurð segir Berglind hlæjandi að það sé ekkert mál að halda veislu. „Veisla er bara verkefni eins og hvað annað í lífinu sem þarf að skipuleggja og undirbúa í tíma, ákveða fyrirkomulag, átta sig á hver kostnaður má vera, skipta niður í smærri verkefni, fá með sér liðsmenn til aðstoðar þegar þarf og þá verður framkvæmdin og útkoman dásamleg hvort sem um íburðarminni eða meiri veislu er að ræða,“ segir hún og viðurkennir að sér finnist fátt skemmtilegra en að útbúa gómsætar veitingar og bjóða fólki heim. „Æfingin skapar meistarann í þessu eins og öllu öðru en auðvitað skemmir ekki fyrir að hafa svona ofboðslega gaman að því. Ég vona bara að bókin nýtist fólki sem er í veisluhugleiðingum. Ef svo er þá er takmarkinu náð.“

Berglind Hreiðarsdóttir er flinkari en flestir í að halda veislur.
Berglind Hreiðarsdóttir er flinkari en flestir í að halda veislur. mbl.is/Kristinn Magnússon
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert