Lakkrístoppar með hvítu Toblerone

Ljósmynd/Linda Ben

Ef það er einhvern tímann tilefni til að baka þá er það í dag og hér eru lakkrístoppar að hætti Lindu Ben. Það toppar það enginn enda ekki ástæða til.

Sjálf segir Linda: „Um daginn var ég að ræða við eina sem er mikil áhugakona um lakkrístoppa og bakar þá hver jól. Hún sagði mér að hún setti alltaf hvítt súkkulaði í lakkrístoppana sína, ég varð alveg ástfangin af þessari hugmynd hennar og varð að prófa sjálf. Hvíta Toblerone-súkkulaðið er mitt allra uppáhalds hvíta súkkulaði og ég hugsaði að það yrði örugglega fullkomið í lakkrístoppana, sem það algjörlega var!“

Lakkrístoppar með hvítu Toblerone

Lakkrístoppar:

  • 3 eggjahvítur
  • 200 g púðursykur
  • 150 g rjómasúkkulaðidropar
  • 150 g súkkulaðihjúpað lakkrískurl

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum, stillið á 150°C og undir- og yfirhita.
  2. Þeytið eggjahvíturnar og þegar mjúkir toppar hafa myndast bætið þá sykrinum hægt og rólega út í og þeytið þar til eggjahvíturnar eru stífþeyttar.
  3. Bætið súkkulaði og lakkrískurli út í, blandið varlega saman við með sleikju.
  4. Notið tvær teskeiðar til þess að móta toppana, passið að hafa ágætis pláss á milli þar sem þeir stækka í ofninum.
  5. Bakið í 15-20 mín.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert