Forréttur sem gestirnir munu elska

Algjörlega frábær forréttur!
Algjörlega frábær forréttur! mbl.is/femina.dk_Betina Hastoft

Þessar brúsettur eru hreint út sagt stórkostlegar! Því hér eru það fíkjur sem spila stórt hlutverk fyrir bragðlaukana. Berðu brúsetturnar fram sem forrétt eða sem léttan rétt í næsta boði og allir gestirnir munu elska hann.

Forréttur sem gestirnir munu elska

  • 1 gróft snittubrauð
  • 2 msk ólífuolía
  • 1 stórt hvítlauksrif
  • 3 ferskar fíkjur

Ricotta-krem:

  • 100 g ricotta
  • ½ tsk. sjávarsalt (Norðursalt)
  • 2 tsk. ólífuolía

Annað:

  • 2 tsk. fljótandi hunang
  • 4 stilkar ferskt timían

Aðferð:

  1. Skerið snittubrauðið í 12 skífur og penslið hverja og eina með ólífuolíu. Steikið á báðum hliðum á heitri pönnu, þar til gylltar og stökkar.
  2. Skerið hvítlaukinn til helminga og nuddið brauðið með hvítlauknum.
  3. Hrærið ricotta ostinum saman við salt og ólífuolíu í skál.
  4. Skolið fíkjurnar og skerið í 4 hluta.
  5. Smyrjið ricottakreminu á brauðið, leggið fíkju ofan á og dreypið  hunangi yfir. Leggið á disk eða bakka og skreytið með ferskum timían greinum og kryddið með smá salti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert