Dúnmjúkar lúxus brauðbollur

Þessar brauðbollur eru algjört lostæti.
Þessar brauðbollur eru algjört lostæti. mbl.is/ bobedre.dk_ © Pernille Greve

Hér eru öll bestu hráefnin sem þú færð í brauðbolluuppskrift – sannkölluð lúxusútgáfa. Það mun fátt gleðja fjölskylduna meira en nýbakaðar bollur yfir hátiðarnar.

Dúnmjúkar lúxus brauðbollur

  • Eitt bréf þurrger
  • 5 dl volgt vatn
  • 80 g púðursykur
  • 50 g bráðið smjör
  • Ca. 900-1000 g hveiti
  • Salt á hnífsoddi
  • 2 stór egg
  • 60 g mjólkursúkkulaði
  • 60 g marsípan, rifið
  • 40 g möndlur, fínt saxaðar
  • Appelsínubörkur
  • Trönuber

Annað:

  • 1 egg
  • 1 msk sykur
  • 1 tsk. kanill, blandaður saman við sykurinn

Aðferð:

  1. Leysið gerið upp í vatni.
  2. Setjið sykur, bráðið smjör út í og því næst hveitið í 2-3 skömmtum. Hnoðið vel saman í 10-15 mínútur. Bætið við salti og hnoðið áfram í 5 mínútur.
  3. Leggið viskastykki yfir deigið og látið hefast í 1 tíma.
  4. Setjið deigið á borðið og búið til holu í miðjunni á því. Sláið eggjunum út í miðjuna ásamt súkkulaðinu, marsípaninu, möndlunum, röspuðum appelsínuberki og trönuberjum.
  5. Leggið deigið yfir „holuna“ og notið því næst skæri eða sax til að saxa í deigið og hnoðið því næst saman. Þetta virkar sem ógerlegt verk til að byrja með en krefst dass af þolinmæði.
  6. Mótið því næst um 15 brauð og setjið á bökunarpappír á bökunarplötu.
  7. Látið hefast í 30-45 mínútur.
  8. Penslið bollurnar með eggi og stráið kanilsykri yfir.
  9. Bakist við 200°C á blæstri í 15-18 mínútur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert