Rándýr forréttur frá gulldrengjunum í Nomy

Þessi uppskrift er fyrir matgæðinginn sem veit fátt skemmtilegra en að leika sér í eldhúsinu. Höfundur uppskriftar er hinn eini sanni Fannar Vernharðsson, einn eigenda veisluþjónustunnar Nomy, sem þrír meistarakokkar standa að.

Uppskriftin birtist upphaflega í Hátíðamatarblaði Hagkaups og Matarvefsins sem kom út nú í desember og innihélt yfirgengilegt magn meistarauppskrifta svo leitun er að öðru eins. Hægt er að nálgast PDF-útgáfu af blaðinu HÉR.

Frönsk rist með seljurótarsalati, reyktum silungi, karsa og piparrót

French toast-eggjablanda

  • 1 dl rjómi, 1 dl nýmjólk, 4 heil egg
  • 10 rif múskathneta
  • salt + pipar

1. Blandið öllu saman og maukið með töfrasprota.

Steikt eggjabrauð (french toast)

  • 4 stk. brauðsneiðar
  • 400 ml eggjablanda
  • 200 g skírt smjör

Setjið smjörið í örbylgjuofn og hitið á hæsta hita uns það bráðnar og skilur sig. Mjólkin ætti þá að vera á botninum og hrein smjörfita sem flýtur ofan á.

Hitið pönnu til að steikja brauðið á og notið skírt smjör til að steikja.

Skerið brauðið í ílanga ferhyrninga og veltið upp úr eggjablöndunni.

Steikið á pönnunni með skírða smjörinu uns brauðið er orðið gullinbrúnt og stökkt báðum megin.

Seljurótarsalat

  • 1 dl japanskt majó
  • 50 g 36% sýrður rjómi
  • 1 tsk. truffluolía
  • 10 g sítrónusafi
  • ½ seljurót
  • 1 dl súrkál

Skrælið og skerið seljurótina í tvennt og rífið niður. Saxið létt yfir súrkálið og blandið svo öllu saman í stórri skál. Smakkið til með salti og pipar eftir smekk.

Silungur

  • 400 g flak reyktur silungur

Skerið silunginn í þunnar sneiðar.

Setjið seljurótarremúlaðið ofan á nýsteikt eggjabrauðið, raðið silungnum ofan í salatið, puntið með karsanum (það má vera mikið) og endið svo á því að rífa piparrótina yfir.

Meistararnir á bak við Nomy: Jó­hann­es Steinn Jó­hann­es­so, Fann­ar Vern­h­arðsson …
Meistararnir á bak við Nomy: Jó­hann­es Steinn Jó­hann­es­so, Fann­ar Vern­h­arðsson og Bjarni Siguróli Jak­obs­son. Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert