Nýárskakan er súkkulaðibomba

Þessi er algjör bomba! Tilvalin nýársterta fyrir alla sælkera.
Þessi er algjör bomba! Tilvalin nýársterta fyrir alla sælkera. mbl.is/Alt.dk_Cecilie Helmersen

Bomba á gamlárs? Hér í súkkulaðiformi sem gestirnir munu elska að gæða sér á. Þessa gerir þú deginum áður og átt því meiri tíma til að dekra við aðalréttinn. Uppskriftin er reiknuð fyrir 8-10 manns.

Nýárskakan er súkkulaðibomba

Botn:

  • 1 pakki bastogne kex (260 g)
  • 75 g smjör
  • 2 msk. fljótandi hunang

Fylling:

  • 500 g gæða súkkulaði
  • ⅓ dl sterkt kaffi
  • 3 msk appelsínulíkjör
  • ½ l rjómi

Annað:

  • Gull glimmer, sem má borða

Aðferð:

  1. Setjið kexið í matvinnsluvél og myljið það fínt.
  2. Bræðið smjör og hunang saman í potti en passið að það sjóði ekki.
  3. Blandið saman kexmulningnum og smjörblöndunni og pressið blöndunni í 25 cm smelluform (klæðið það fyrst með smjörpappír).
  4. Bræðið súkkulaðið í fyllinguna yfir vatnsbaði og hrærið kaffinu og líkjörinu saman við. Pískið rjómann á meðan súkkulaðið kólnar.
  5. Hrærið 1/3 af rjómanum út í súkkulaðiblönduna veltið restinni af rjómanum varlega saman við þar til allar hvítar rjómastrípur hverfa.
  6. Hellið súkkulaðimassanum yfir botninn og setjið inn í kæli yfir nótt.
  7. Kakan á að berast fram köld og stráið smá gull glimmeri yfir áður en kakan er borin fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert