Svona skerðu lauk án þess að gráta

Þú munt aldrei þurfa að fella aftur tár við það …
Þú munt aldrei þurfa að fella aftur tár við það að skera lauk - við höfum lausnina. mbl.is/Colourbox

Nú þarftu aldrei aftur að fella tár þegar þú skerð lauk  vandamálinu með blaut augu við eldamennskuna er lokið. Eina eldhúsgræjan sem þú þarft til að klára verkið er örbylgjuofn.

Svona skerðu lauk án þess að fella tár

  1. Skerðu báða enda af lauknum
  2. Settu laukinn inn í örbylgjuofn
  3. Láttu örbylgjuofninn hita laukinn í 30 sekúndur
  4. Nú geturðu skorið laukinn niður að vild án þess að vökna um augun

Við seljum þetta ekki dýrar en við keyptum en einhverjir sérfræðingar sverja að þetta sé málið. Munið bara að hita laukinn ekki of lengi ... (og að allajafna er mælt með að laukurinn sé hafður kaldur fremur en heitur).

mbl.is/Colourbox
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert