Skildi eftir 250 þúsund í þjórfé

Jenny McCarthy og Donnie Wahlberg.
Jenny McCarthy og Donnie Wahlberg. AFP

Öðlingurinn og úrvalsleikarinn (og poppstjarnan) Donnie Wahlberg byrjaði árið með pompi og prakt þegar hann skildi eftir 250 þúsund króna þjórfé á IHOP.

Wahlberg (sem er bróðir Mark Wahlberg, leikur í Blue Bloods og er í New Kids On The Block) var staddur á staðnum ásamt eiginkonu sinni, Jenny McCarthy. Hann bætti 2.020 dollurum við reikninginn með kveðjunni Takk Bethany! — svo bætti hann við 2020 tip challenge (þar sem hann skorar á aðra að gera slíkt hið sama)

Bethany, sem heitir fullu nafni Bethany Provencher, hafði þjónað hjónunum til borðs og þar sem hún hafi alltaf verið mikill aðdáandi Wahlberg hafi hún lagt sig alla fram og ekki sýnt nein merki þess að hún þekkti hann. Heldur hafi hún farið inn á baðherbergi og öskrað smá. Þegar hann borgaði hafi hann rétt henni reikninginn samanbrotinn og beðið hana um að opna hann ekki fyrr en hann væri farinn.

Bethany ærðist að vonum úr gleði enda ekki amalegt að fá 250 þúsund krónur í þjórfé.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert