Vöfflur fyrir þá sem vilja gera vel við sig

Frábærar vöfflur sem setja þig í jólagírinn ef þú varst …
Frábærar vöfflur sem setja þig í jólagírinn ef þú varst ekki þar enn þá. mbl.is/Anneauchocolat.dk

Það mun ekkert stoppa okkur í þessum vöfflubakstri – enda engin ástæða til. Hér bjóðum við upp á vöfflur eins og þú hefur aldrei smakkað þær. Fullkomnar í kaffibaksturinn á aðventunni eða sem morgunmatur fyrir þá sem kunna að gera vel við sig.

Vöfflur fyrir þá sem vilja gera vel við sig (2 stk.)

  • 1 þroskaður banani
  • 1 egg
  • 1 msk. hveiti
  • Handfylli af möndlum
  • Kanill á hnífsoddi
  • Kardemomma á hnífsoddi
  • Engifer á hnífsoddi
  • Annað hráefni til að skreyta vöfflurnar – t.d. rjómi, granateplakjarnar, kirsuber eða möndluflögur.

Aðferð:

  1. Setjið öll hráefnin í blandara og blandið vel saman.
  2. Bakið í vöfflujárni og njótið með því sem hugurinn girnist.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert