Stórkostlegur pastaréttur sem bræðir hjartað

Við leggjum ekki meira á ykkur, en þessi réttur er …
Við leggjum ekki meira á ykkur, en þessi réttur er frábær. mbl.is/Femina.dk_Winnie Methmann

Hér ertu að fara nota flottustu sveppina sem þú kemst yfir ásamt kryddpylsu. Þessi réttur er stórkostlegur fyrir bragðlaukana svo ekki sé minna sagt.

Stórkostlegur pastaréttur (fyrir 4)

  • 500 g ferskt pasta
  • 250 g portobello-sveppir
  • 250 g sveppir
  • 100 g keisarahattar
  • 4 msk. smjör til steikingar
  • Salt og pipar
  • 1 stór laukur
  • 2 stór hvítlauksrif
  • Handfylli fersk steinselja
  • Handfylli ferskt timían
  • 300 g ítölsk kryddpylsa, t.d. salsiccia
  • 1 dl hvítvín
  • 2 dl grænmetiskraftur
  • 75 g parmesan

Aðferð:

  1. Hreinsið sveppina og skerið í þunnar skífur. Steikið þá í stórum potti upp úr helmingnum af smjörinu. Kryddið með salti og pipar.
  2. Saxið laukinn og pressið hvítlaukinn. Saxið steinseljuna og timían (geymið smá af timían til skrauts). Setjið laukana og kryddjurtirnar út í pottinn með sveppunum. Skerið pylsuna í litla bita og setjið út í pottinn þar til gegnumsteikt.
  3. Hellið hvítvíni og grænmetiskrafti út í pottinn og látið suðuna koma upp. Setjið þá restina af smjörinu út í og leyfið sósunni að malla þar til hún byrjar að þykkna.
  4. Rífið parmesan-ostinn niður og bætið honum út í sósuna í pottinum rétt áður en borið er fram.
  5. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum og berið fram með sveppasósunni – skreytið með fersku timían.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert