Kjúklingabollur löðrandi í osti

Kjúklingabollur með hvítlauksspaghettí og nóg af osti.
Kjúklingabollur með hvítlauksspaghettí og nóg af osti. mbl.is/©How Sweet Eats

Ef eitthvað gefur okkur vatn í munninn þá eru það þessar bollur hér – því allt sem er þakið osti er efst á óskalistanum. Kjúklingabollur með nóg af parmesan og hvítlauksspaghettí er hér á boðstólnum.

Kjúklingabollur löðrandi í osti

  • 2 hvítlaukshausar
  • Ólífuolía
  • 450 g kjúklingahakk
  • 1 stórt egg
  • 2 hvítlauksrif, marin
  • ½ bolli nýrifinn paremesan, + smá auka ostur
  • ¼ bolli brauðrasp
  • 3 msk. ferskar kryddjurtir, t.d. basilika, steinselja, timían eða oreganó
  • 1 tsk. þurrkuð basilika
  • 1 tsk. þurrkuð steinselja
  • ½ tsk. salt
  • ½ tsk. pipar
  • 1 bolli rifinn mozzarella
  • 450 g spaghettí
  • ¼ bolli nýrifinn parmesan
  • 1-2 krukkur af marinara-sósu
  • Fersk basilika til skrauts

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 190°. 
  2. Skerið toppinn af hvítlaukshausunum og nuddið hvítlaukinn létt þannig að hýðið losni af. Setjið um ½ tsk. af ólífuolíu ofan á hvítlaukinn og pakkið þeim inn í álpappír. Ristið í ofni í 45 mínútur.
  3. Takið fram stóra skál og blandið saman kjúklingahakki, eggi, ólífuolíu, hvítlauk, parmesan, brauðraspi, basiliku, steinselju, salti og pipar. Mótið í bollur. Þú getur aðeins bleytt hendurnar til að blandan klístrist ekki eins mikið við þegar þú rúllar í bollur.
  4. Setjið um hálfa krukku af marinara-sósu í smurt eldfast mót og leggið bollurnar þar ofan á með smá millibili. Setjið smá sósu yfir hverja bollu og setjið rifinn mozzarella yfir. Bakið í 25-30 mínútur.
  5. Sjóðið spaghettí samkvæmt leiðbeiningum og setjið síðan í stóra skál. Dreypið smá ólífuolíu yfir. Þegar hvítlaukurinn er bakaður, kreistið hann þá úr álpappírinum og út í spaghettíið. Setjið um ¼ bolla af parmesan saman við og blandið létt saman.
  6. Berið bollurnar fram með spaghettí og jafnvel góðu brauði. Skreytið með ferskri basiliku.
mbl.is/©How Sweet Eats
mbl.is/©How Sweet Eats
mbl.is/©How Sweet Eats
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert