Jólin eru löngu búin en enn er töluvert af óseldum jólabjór. Til að koma í veg fyrir þá sóun hefur Viking brugghús sett jólabjórinn á útsölu.
Að sögn Hilmars Geirssonar, vörumerkjastjóra hjá Viking brugghúsi, hefur þessi aðgerð fyrirtækisins mælst vel fyrir hjá neytendum. „Í janúar í fyrra gerðum við tilraun með að lækka verð á þeim jólabjór sem ekki seldist í desember og sú aðgerð reyndist mjög vel. Það lá því beinast við að endurtaka leikinn núna í ár. Reglurnar í ÁTVR eru þannig að árstíðabundnar vörur eins og jólabjór eru einungis til sölu í ákveðinn tíma og eftir þann tíma dettur bjórinn úr sölu í öllum vínbúðum. Þá er óseldur bjór sendur aftur til birgja og honum fargað. Jólabjórinn sem við erum með sölu í ÁTVR er á þessum tímapunkti í mjög góðu ástandi og um fullgóðan bjór að ræða sem rennur ekki út fyrr en næsta haust. Til þess að koma í veg fyrir þessa sóun á matvælum og í leiðinni koma til móts við neytandann höfum við ákveðið að lækka verðið á jólabjór, frá okkur í ÁTVR, þar til hann dettur úr sölu eða klárast. Verðlækkun fer eftir tegundum en er á bilinu 20%-30% af útsöluverði ÁTVR og því er um töluverða lækkun að ræða. Vonandi verður þetta til þess að neytendur sjái sér hag í því að drekka jólabjór aðeins lengur og minnka þannig í leiðinni magnið af bjór sem þarf að farga.“