Popp-boltar sem slegist er um

Algjörlega ómótstæðilegir popp-boltar með mango og hnetum.
Algjörlega ómótstæðilegir popp-boltar með mango og hnetum. mbl.is/ahousinthehills.com

Eitt vinsælasta snakk allra tíma er eflaust poppkorn – það elska það allir. Hér eru popp-boltar, stútfullir af leynihráefnum sem gefa ómótstæðilegt bragð. Þessir boltar eru stökkir undir tönn og svo vinsælir að slegist er um þá.

Popp-boltar sem slegist er um (12 stórir boltar)

  • ½ bolli maíisbaunir
  • ½ msk. grape-seed olía
  • ½ bolli maple-síróp
  • ¾ bolli organic brúnt hrísgrjónasíróp
  • 1/3 bolli þurrkað mangó, skorið í litla bita
  • 4 msk. graskersfræ
  • 4 msk. pekanhnetur, saxaðar
  • 4 msk. kasjúhnetur, saxaðar
  • 2 msk. möndlur, saxaðar
  • ¼ tsk. sjávarsalt

Aðferð:

  1. Takið fram stóran pott og hitið grape-seed olíuna á meðalhita ásamt maísbaununum. Hristið pottinn reglulega til að baunirnar brenni ekki við.
  2. Setjið poppkorn, hnetur og mango í skál og blandið saman.
  3. Takið fram litla pönnu og hitið maple-sírópið og hrísgrjónasírópið ásamt salti. Hrærið stöðugt í á meðan þar til blandan er orðin alveg þunn.
  4. Hellið blöndunni yfir poppkornið og veltið öllu saman.
  5. Setjið inn í ísskáp í 15-20 mínútur þar til hefur harðnað örlítið.
  6. Formið poppblönduna í bolta, og þrýstið vel eins og um snjóbolta væri að ræða.
  7. Setjið í loftþétt box og geymið inn í ísskáp fyrir næsta kósíkvöld eða borðið sem millimál.

Uppskrift: ahousinthehills.com

Stökkir undir tönn og fullir af bragðmiklum hráefnum.
Stökkir undir tönn og fullir af bragðmiklum hráefnum. mbl.is/ahousinthehills.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert