Rúrik í samstarfi við þekktasta kristalsframleiðanda Danmerkur

Ein fallegasta ginflaska allra tíma í fallegustu náttúru Íslands – …
Ein fallegasta ginflaska allra tíma í fallegustu náttúru Íslands – og í höndunum á alls ekki ómyndarlegum manni, Rúriki Gíslasyni, sem er einn af eigendum vörumerkisins Glacier Gin. Ljósmynd/Stefán John Turner

Það er ekki á hverjum degi sem tvö fáguð og eftirsóknarverð fyrirtæki taka höndum saman. Glacier Gin í eigu okkar ástsæla landsliðsmanns í fótbolta, Rúriks Gíslasonar, hefur hafið samstarf við hinn vinsæla danska kristalsframleiðanda Frederik Bagger, en vörurnar hans þykja hámóðins í dag – ekki að ástæðulausu. Það verður áhugavert að sjá hver útkoman verður en búast má við miklu.

Þeir sem ekki þekkja til ættu að kynna sér Glacier Gin aðeins nánar. Fyrirtækið var stofnað fyrir rétt um tveimur árum og hefur skotist hratt áfram. Enda um ekkert venjulegt gin að ræða. Hér er allt það besta sem þú færð frá náttúru landsins í einni flösku. Undirstaðan er íslenskt vatn í bland við túnfífil, einiber, sítrónu, kóríander og ilmappelsínu. Blandan er hreint út sagt stórkostleg og engin furða að Glacier Gin sé eitt það þekktasta á veitingastöðum bæjarins í dag og víðar fyrir utan landsteinana. En ginið er komið á markað í Þýskalandi, Spáni, Dubai og nú einnig í Danmörku.

Á bak við gott gin stendur faglegt teymi, en Glacier Gin er í eigu Rúriks Gíslasonar, Fannars Guðmundssonar og Haraldar Gísla Sigfússonar. „Tveir eldklárir frábærir strákar sem hafa sterka sýn á hlutina buðu mér það tækifæri að koma inn í fyrirtækið. Þeir búa yfir ákveðnum kostum sem ég hef ekki og öfugt – þannig myndum við gott teymi,“ segir Rúrik er við spurðum hann út í fyrirtækið.

Það er ekki einungis innihaldið sem fangar bragðlaukana því flaskan sjálf þykir einstaklega smart og er mjög myndræn ef svo má segja. Flaskan er í grunninn hvít á lit, með mattri áferð. Strákarnir höfðu ákveðna sýn í huga hvað útlitið varðaði og fengu breskan hönnuð til að setja hugmyndina niður á blað. Útkoman er einföld, stílhrein og segir allt sem segja þarf. Hún laðar svo sannarlega augað að og stendur upp úr í hvaða umhverfi sem er. „Ég vil stundum segja að flaskan sé eins og sæt stelpa eða strákur sem stelur athyglinni þinni á ballinu og þegar þú kynnist innihaldinu betur þá verður ekki aftur snúið,“ segir Rúrik og hlær. Við getum fullyrt að flaskan er í það minnsta eftirsóknarverð að mynda og deila ef marka má síður samfélagsmiðlanna.

Samstarfsverkefni byggt á góðum vinskap

Rúrik segir það hafa staðið til í einhvern tíma að fá Frederik með sér til landsins, en þeir kynntust í gegnum sameiginlegan vin í Kaupmannahöfn. „Ég er mikill aðdáandi kristalsins frá Frederik Bagger og hef keypt sitt lítið af hverju í gegnum árin áður en ég kynntist honum persónulega – hann er frábær náungi, þægilegur og góður vinur. Við höfum unnið að þessari vöruþróun saman og mun afraksturinn verða afhjúpaður í kringum mánaðamótin febrúar/mars.“ Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvaða vöru þeir félagar ætla að kynna til leiks en Rúrik heldur fast í að halda þeim upplýsingum leyndum, þó að hann sé næstum búinn að missa það fram á tunguna nokkrum sinnum í viðtalinu.

Undirrituð getur fullvissað lesendur um að það sem hér um ræðir eru fallegustu kristalsvörur síðari ára, sem spanna heila vörulínu og meira til. Frederik Bagger er sonur hins heimsfræga Eriks Bagger og á því ekki langt að sækja ræturnar í heimi hönnunar. Frederik kynnti fyrstu tvær vörurnar sínar, kristalsglös, á netinu undir lok ársins 2014 og innan tveggja vikna höfðu honum borist um 300 pantanir. Neytendur höfðu talað og hefur vörumerkið þotið á ógnarhraða upp stjörnustigann síðustu ár. Fyrirtækið selur í dag hágæða kristal og postulín um alla Evrópu – þar á meðal hér á landi.

En þetta er líka fyrsta samstarfsverkefnið sem Frederik Bagger fer í með vörurnar sínar, en hann segist vera varkár um hvað og hverja hann tengi við vörumerkið. „Við Rúrik erum góðir vinir og höfum haft sömu hugsjón varðandi samstarf af einhverjum toga. Við vorum sammála um að það sem við ætluðum að gera ætti að vera skemmtilegt en líka skynsamlegt. Og eftir að hafa rætt hugmyndina kom ekkert annað til greina en að taka skrefið lengra og framkvæma,“ segir Frederik, sem bætir því við að sjálfbærni og umhverfisvænir hlutir spili þar stórt hlutverk hvernig hann stundi viðskipti. „Að komast í nálægð við söguna í kringum Glacier Gin og íslensku náttúruna, þá varð ekki aftur snúið. Útkoman er spennandi samstarf sem við hlökkum til að deila með ykkur,“ segir Frederik.

Ævintýraferð um Þórsmörk

Þegar kynna á erlendum gesti land og þjóð í fyrsta sinn er alveg eins gott að gera það með stæl. Glacier Gin-teymið leitaði til Midgard Adventure, en þeir skipulögðu ævintýralega ferð sem mun seint gleymast. Ferðinni var heitið í Þórsmörk og upp á snævi þakinn Gígjujökul – landslag sem danskur ferðamaður er ekki vanur að sjá á sínum heimaslóðum.

„Ég fékk ótrúlega upplifun af Íslandi og það var mikill heiður að fá að upplifa þessa stórbrotnu náttúru hér á landi. Ég er mjög hrifinn af Íslendingum í heild sinni og gestrisni ykkar er yndisleg. Það hefur alltaf verið draumur hjá mér að koma til landsins og var þessi ferð ógleymanleg lífsreynsla,“ segir Frederik. En hugmyndir og innblástur hljóta að spretta fram eins og sviti í umhverfi sem þessu? „Á ferðalögum mínum fæ ég oft innblástur af sögu og menningu á hverjum stað fyrir sig. Hér var það jökullinn sem snerti mig á mjög sérstakan hátt sem erfitt er að útskýra – ég fann fyrir létti, mikilleika og innblæstri á alveg nýjan máta. Þessi upplifun hefur gefið mér mikla lífsánægju,“ segir Frederik.

Íslendingar eru smekkfólk fram í fingurgóma

Við Íslendingar erum hálfgerðir nautnaseggir og kunnum svo sannarlega að gera vel við okkur. Sama hvort um mat, drykk, klæðnað eða húsbúnað er að ræða – hjá því verður ekki komist. Við erum orðin meðvitaðri um hönnun og þarfirnar okkar, og nýtum hvert tækifærið sem gefst til að „tríta“ okkur þegar það á við. Rúrik segist ekki vera nein undantekning þegar að þessu kemur og að hann heillist auðveldlega af fallegri hönnun í allri sinni mynd.

Frederik var á sama máli og tók undir; „það leikur enginn vafi á því að Íslendingar eru smekkfólk fram í fingurgóma og hafa mikla ástríðu fyrir skandinavískri hönnun. Vörurnar mínar hafa verið til sölu í þrjú og hálft ár á Íslandi og það er virkilega ánægjulegt að sjá hversu vel hefur verið tekið í vörumerkið okkar hér á landi. Ég fyllist alltaf stolti þegar ég verð vitni að því að fólk tali um kristalsvörurnar – það er ekki annað hægt en að fyllast þakklæti sem hönnuður. Ísland er lítill markaður með mikla sál og ég hef mikla trú á því að Frederik Bagger geti orðið eitt af þeim vörumerkjum sem eiga mikla framtíð á landinu,“ segir Frederik.

Fyrir áhugasama, þá má fylgjast nánar með samstarfinu inn á Instagram – @theglaciergin og @frederikbaggerdk.

Það voru Midgard Adventure sem skipulögðu ferðina í Þórsmörk og …
Það voru Midgard Adventure sem skipulögðu ferðina í Þórsmörk og upp á Gýgjujökul. Ljósmynd/Stefán John Turner
Ljósmynd/Stefán John Turner
Frederik Bagger og Rúrik skála hér í kristalsglösum í óspilltri …
Frederik Bagger og Rúrik skála hér í kristalsglösum í óspilltri íslenskri náttúru – rétt eins og sannir menn gera. Ljósmynd/Stefán John Turner
Ljósmynd/Jón Ragnar Jónsson
Nýtt samstarfsverkefni Glacier Gin og Frederik Bagger mun líta dagsins …
Nýtt samstarfsverkefni Glacier Gin og Frederik Bagger mun líta dagsins ljós í lok febrúar-byrjun mars. Hér má sjá Rúrik í ferð upp á jökli sem hann tók góðvin sinn og nú viðskiptafélaga með í, í vikunni sem leið. Ljósmynd/Stefán John Turner
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert