Lúxusálegg á brauðið

Sjúklega gott brauðmeti með jarðarberjum og brie.
Sjúklega gott brauðmeti með jarðarberjum og brie. mbl.is/Sæson.dk_Henrik Freek

Hvernig hljómar baguette með jarðarberjum og brie? Því jarðarber eru ekki bara ávextir, þau geta líka verið álegg ofan á gómsætan brauðmat.

Lúxusútgáfan af brauðmat

  • 1 baguette
  • 15 g smjör
  • Handfylli af salati, að eigin vali
  • 125 g mildur brie-ostur eða geitaostur
  • ¼ gúrka
  • 125 g jarðarber
  • Pipar

Aðferð:

  1. Skerið baguette-brauðið til helminga og smyrjið botn og lok með smjöri.
  2. Skerið ostinn og gúrkuna í þunnar skífur. Skerið jarðarberin í skífur.
  3. Setjið salat, ost, gúrku og jarðarber á botninn á brauðinu og stráið svörtum pipar yfir.
  4. Skerið baguette-samlokuna í fjóra jafnstóra bita og berið fram.

Uppskrift: Sæson.dk

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert