Nýtt súkkulaði frá Omnom

Omnom hefur gefið út nýtt súkkulaði sem heitir einfaldlega Love. Um er að ræða tvenns konar súkkulaði, svo ólíkt að í fyrstu virðist ekkert sameina það, en þegar nánar er litið er það einmitt það sem sameinar það. Sea salt toffee og lakkrís + hindber, annað salt og hitt súrt. Þessi tvö súkkulaðistykki eru andstæðir pólar sem ná fullkomlega saman, rétt eins og litbrigði ástarinnar.

Sea salted toffee 

Við elskum karamellusúkkulaði en að búa til hina fullkomu karamellu getur verið snúið. Við höfum leikið okkur með þessa uppskrift í langan tíma. Til að ná fram karamellubragðinu bökuðum við mjólkina í sólarhring eða þar til að hún tók á sig rjómakenndan karamellukeim sem minnir einna helst á dulce de leche. Því næst stráðum við yfir súkkulaðið sjávarsalti frá Saltverki til að fullkomna bragðið sem við leituðum að. Útkoman er þessi karamellukenndi draumur; Sea salted toffee.

Lakkrís + hindber 

Innblásturinn fyrir þetta sérstaka súkkulaði er ekki sóttur í íslenska náttúru eða framandi hráefni heldur á nammibarinn. Það er eitthvað algjörlega einstakt við þessa súru, söltu og sætu blöndu sem er með öllu ómótstæðileg. Við möluðum lakkrísrót og þurrkuð hindber sem við síðan blönduðum saman við lífrænt kakósmjör og úr varð þessi magnaða blanda. Að lokum stráðum við extra miklum hindberjum yfir til að fanga lakkrís de résistance! Þetta er lakkrís + raspberry.

Love-línan verður einnig fáanleg í gjafaöskju innan skamms.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert