Kjúklingarétturinn sem sagður er æra óstöðuga

mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir

Ef þetta er ekki gæðastimpill á góðri uppskrift þá veit ég ekki hvað. Landsmenn geta því allir sem einn ærst úr gleði í kvöld enda er þessi uppskrift hreinasta sælgæti. Hún kemur úr smiðju hinnar einu sönnu Berglindar Guðmunds á GRGS.is

Lazone-kjúklingaréttur

Fyrir 4

  • 700 g kjúklingalundir frá Rose Poultry
  • 3 msk. ólífuolía, t.d. extra virgin oil frá Filippo Berio
  • 4 msk. smjör
  • 2 hvítlauksrif
  • 500 ml matreiðslurjómi
  • salt og pipar
  • 500 g spagettí

Kryddblanda

  • 2 tsk. reykt paprikukrydd
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • ½ tsk. cayenne-pipar
  • ½ tsk. oregano
  • salt og pipar

Leiðbeiningar

1. Blandið saman hráefnunum í kryddblönduna. Setjið kjúklinginn í skál ásamt 1 msk. af ólífuolíu og hellið kryddblöndunni saman við. Nuddið kryddinu vel inn í kjúklinginn.

2. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu.

3. Hitið 2 msk. af smjöri á pönnu og steikið kjúklingalundirnar í 3-4 mínútur á hvorri hlið eða þar til þær eru fulleldaðar. Takið kjúklinginn af pönnunni, setjið á disk og álpappír yfir til að halda hita á kjötinu.

4. Bætið 2 msk. af smjöri út á pönnuna ásamt hvítlauk, steikið í 1 mínútu og hrærið stöðugt á meðan. Hellið rjómanum hægt saman við og hrærið vel. Látið malla í 5 mínútur eða þar til sósan fer að þykkna. Saltið og piprið.

5. Hellið soðnu spagettíi út á pönnuna og veltið því upp úr sósunni. Berið strax fram með kjúklingalundunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert