Ógleymanlegar ítalskar kjötbollur með penne pasta

Ljósmynd/Gott í matinn

Ítalskar kjötbollur eiga svo sannarlega vel við á köldum vetrardögum hvort sem það rignir eða snjóar, en auðvitað má gæða sér á þessum dásamlega rétti allan ársins hring svo það sé alveg á hreinu.

Ógleymanlegar ítalskar kjötbollur með penne pasta

Fyrir fjóra

  • 500 g nautahakk
  • 500 g grísahakk
  • 1 stk. laukur
  • 1 stk. hvítlaukur
  • 200 g rifinn mozzarella frá Gott í matinn
  • 1 stk. egg
  • 50 g brauðrasp
  • 1 tsk. sjávarsalt
  • 1 tsk. pipar
  • 50 g parmesan ostur
  • 500 g penne pasta
  • 500 g tómat-pastasósa
  • 120 g ferskur mozzarella
  • steinselja

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200 gráður. Setjið pastað í pott og eldið eftir leiðbeiningum á umbúðunum.
  2. Setjið hakk, lauk, hvítlauk, 100 g rifinn mozzarella, 2 egg, brauðrasp, sjávarsalt, pipar og 50 g rifinn parmesan saman í matvinnsluvél og hakkið þar til allt hefur náð að blandast vel saman.
  3. Myndið kjötbollur svipaðar að stærð og setjið í eldfast mót með smá ólífuolíu í botninn. Eldið í rúmar 20 mínútur eða þar til bollurnar eru fulleldaðar.
  4. Setjið pastasósu yfir bollurnar ásamt 100 g af rifnum mozzarella og dreifið ferskum mozzarella yfir jafnt og þétt.
  5. Setjið bollurnar aftur inn í ofn og eldið í 15 mínútur eða þar til osturinn er alveg bráðnaður.
  6. Saxið steinselju smátt niður og dreifið yfir bollurnar.
  7. Berið fram með pasta eða því sem hugurinn girnist og baquett-brauði.
Ljósmynd/Gott í matinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert