Selur dagsgamlan BigMac á 100.000 krónur

Eins og sjá má er borgarinn í góðu ásigkomulagi.
Eins og sjá má er borgarinn í góðu ásigkomulagi. Ljósmynd/samsett mynd af Facebook

Það er ekki á hverjum degi sem okkur Íslendingum stendur til boða að kaupa alvöru BigMac-hamborgara en þessa stundina er verið að selja einn slíkan inn á Brask og brall.

Borgarinn er að sögn seljanda sólarhringsgamall og vill eigandinn fá 100 þúsund krónur fyrir gripinn og má færa sannfærandi rök fyrir því að hann sé hverrar krónu virði.

Mikill áhugi er á borgaranum enda gríðarlegt fágæti hér á landi og margir sem syrgja hann enn.

Ljósmynd/samsett mynd af Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert