Einn minnsti veitingastaður heims opnar í Danmörku

Nýr sushi-veitingastaður hefur opnað dyrnar í Kaupmannahöfn og þykir einn …
Nýr sushi-veitingastaður hefur opnað dyrnar í Kaupmannahöfn og þykir einn sá fágaðasti hingað til. mbl.is/© Merō Studio

Það var í september síðastliðnum sem Sushi Anaba opnaði dyrnar í Danmörku en staðurinn er talinn verða sá vinsælasti í allri Evrópu áður en langt um líður.

Eigandi staðarins er Mads Battefeld sem segist sjálfur vera Japani í dönskum kokkslíkama. Mads var áður yfirkokkur á tveggja stjörnu Michelin-staðnum Henne Kirkeby Kro og hefur einnig starfað á sushi-veitingastaðnum Hakkoku. En það er á Hakkoku í Tokyo sem hann starfaði í eitt ár til að læra af þeim bestu í bransanum.

Í gegnum starf sitt í Tokyo sótti hann öll þau verkfæri sem þarf til að gera heimsins besta sushi. Allt frá því að standa úti á hrísgrjónaakri yfir í að velja ferskasta fiskinn á stórum fiskmarkaði. En metnaður hans og væntingar með Sushi Anaba eru háar. Hann horfir ekki mikið í Michelin-stjörnurnar, heldur vill hann fylgja eftir þeim gæðum og nákvæmni sem til þarf í að útbúa fullkomið sushi.

Innréttingarnar eru heldur ekki af verri endanum. Hér sjáum við handgerð loftljós úr glæsilegum sedrusviði, bambus og einnig hefðbundnar rennihurðir úr pappír sem ná upp í loft. Meira að segja prjónarnir sjálfir eru búnir til úr svörtum ebony-viði frá Kamerún.

Matseðillinn samanstendur af 22 skömmtum sem kosta 1.400 danskar krónur eða um 26 þúsund íslenskar krónur. Ef þú pantar sake með kostar það aukalega.

Staðurinn ber nafnið Sushi Anaba og tekur 8 manns í …
Staðurinn ber nafnið Sushi Anaba og tekur 8 manns í sæti. mbl.is/© Merō Studio
mbl.is/© Merō Studio
mbl.is/© Merō Studio
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert