Justin Bieber fékk 1,3 milljóna króna íspinna í Valentínusargjöf

Hailey Baldwin gaf eiginmanni sínum, Justin Bieber, íspinna sem þykir …
Hailey Baldwin gaf eiginmanni sínum, Justin Bieber, íspinna sem þykir sá dýrasti til þessa. AFP

Sum okkar fengu súkkulaði og blóm á meðan stjörnur eins og Justin Bieber fengu aðeins veglegri gjöf sem verður seint toppuð.

Hver man ekki eftir því þegar Kanye West fékk Kenny G til að flytja ástarlög fyrir Kim Kardashian eða þegar Nick Jonas gaf konunni sinni Priyanka Chopra, snjósleða á degi elskenda? Allt eftirminnilegar gjafir og langt fyrir utan þann fjárhag sem við ráðum við.

Hin 23 ára Hailey Baldwin, eiginkona Justin Bieber, dró alls ekki úr hlutunum er hún kom manninum sínum á óvart á Valentínusardaginn. Hún gaf Bieber íspinna þakinn kristöllum sem hannaður er af listamanninum Dan Life, en hann þykir afar vinsæll á meðal stjarnanna þar vestanhafs.

Íspinninn er að verðmæti 10.000 dollarar eða í kringum 1,3 milljónir króna, enda skreyttur 12.210 kristöllum. Ísinn er einn af 10 sem Dan Life hefur búið til og eru nú um 3 stykki óseldir ef einhver hefur áhuga. Þess má geta að listamaðurinn hannaði til að mynda stígvélin sem Shakira klæddist á Super Bowl-hátíðinni um daginn og þóttu vekja athygli.

Ísinn er hannaður af listamanninum Dan Life og prýða 12.210 …
Ísinn er hannaður af listamanninum Dan Life og prýða 12.210 kristallar hann. Skjáskot/Dan Life_ People.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert