Besti árangur liðsins á alþjóðlegu stórmóti

Ljósmynd/Aðsend

Íslenska kokkalandsliðið varð í þriðja sæti í samanlögðum árangri allra á Ólympíuleikum matreiðslumeistara en verðlaunaafhending fór fram í dag. Liðið vann til gullverðlauna í öllum sínum keppnisgreinum og þegar árangur allra liða hafði verið lagður saman komst Ísland á verðlaunapallinn ásamt Noregi, sem lenti í fyrsta sæti og Svíþjóð sem lenti í öðru sæti.

Þetta er besti árangur liðsins á alþjóðlegu stórmóti til þessa og er árangur Norðurlandanna eftirtektarverður. Samtals voru rúmlega þrjátíu lið sem unnu sér inn keppnisrétt á leikunum. 

„Við höfum sýnt það á þessum Ólympíuleikum að þrátt fyrr það að búa ekki við sama stuðning og keppnislið Norðurlandana þá erum við engir eftirbátar þeirra og erum í fremstu röð á heimsvísu og þar ætlum við að vera,“ segir Björn Bragi Bragason, forseti Klúbbs matreiðslumeistara sem er úti í Stuttgart með liðinu. „Þetta hefði þó ekki verið hægt án allra þeirra sem leggja okkur lið í að komast hingað út. Ég verð sérstaklega að þakka Íslandsstofu, Ísey skyri og MS sem hafa verið með okkur í þessu verkefni og gert okkur kleift að ná þessum árangri.“ 

Kokkalandsliðið hefur æft stíft síðustu átta mánuði fyrir keppnina. Hátt í fjögur tonn af búnaði voru send til Þýskalands en liðið þarf að setja upp fullbúið eldhús á keppnisstaðnum. Þá er ótalið það hráefnið sem flytja þarf á staðinn en Kokkalandsliðið leggur áherslu á að nota sem mest af hágæða íslensku hráefni í matargerðina. 
 
Ólympíuleikarnir, IKA Culinary Olympics, eru haldnir á fjögurra ára fresti og í ár fagnar keppnin 25 ára afmæli. Þar mætast um tvö þúsund af færustu kokkum heims sem keppa sín á milli um gull-, silfur- og bronsverðlaun. Keppnin hefst 14. febrúar og stendur til 19. febrúar. Lið frá um 60 þjóðum keppa á leikunum. Kokkalandsliðið keppir í tveimur greinum, annars vegar er keppt í “Chef´s table” og hins vegar er keppt í heitum mat eða Hot Kitchen. Í keppninni um heitu réttina er útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétti, aðalrétti og eftirrétti sem eldað er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti. Í Chef´s table er framreiddur sjö rétta hátíðarkvöldverður fyrir tíu manna borð, auk tveggja dómara. Kvöldverðurinn samanstendur m.a. af fiskréttafati, pinnamat, vegan rétti, lambakjöti og desert. Dómarar alls staðar að úr heiminum dæma í keppnunum þar sem meðal annars er tekið mið af bragði, útliti, samsetningu, hráefnisvali og fagmennsku við undirbúning og matargerð.
 
Íslenska kokkalandsliðið hefur síðustu ár skipað sér meðal þeirra færustu í matreiðslu og er nú meðal 6 bestu kokkalandsliða heims.


Í okkalandsliðinu eru: Sigurjón Bragi Bragason, þjálfari kokkalandsliðsins, Björn Bragi Bragason, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, varaforseti Klúbbs matreiðslumeistara, Kristinn Gísli Jónsson, Snorri Victor Gylfason, Sindri Guðbrandur Sigurðsson, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Ísak Darri Þorsteinsson, Jakob Zarioh Sifjarson Baldvinsson, Ísak Aron Ernuson og Chidapha Kruasaeng. Auk þess fara með út aðstoðarmenn: Ari Þór Gunnarsson, Aþena Þöll Gunnarsdóttir, Dagur Hrafn Rúnarsson, Guðmundur Halldór Bender, Kristján Örn Hansson, Valur Bergmunsson, Jón Þór Friðgeirsson, Ragnar Marinó Kjartansson og Ívar Kjartansson. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert