Jennifer Garner er mikill aðdáandi Skátastúlknasmákaka eða Girls Scout Cookies og lítur á það sem sjálfsögð mannréttindi að hafa aðgang að þeim.
Að því sögðu er hún meðvituð um að ekki allir hafi aðgang að þeim og því tók hún upp á því á dögunum að bjóðast til að senda fólki kökur — því að kostnaðarlausu.
Það eina sem þú þarft að gera er að senda henni tölvupóst á netfangið: jenhasextra@gmail.com og hver veit nema þú verðir heppin/n?
Uppátækið hefur eðlilega mælst vel fyrir en engum sögum fer af því enn hversu margir hafa óskað eftir kökukassa eða hversu marga hún ætlar að senda — eða hvort hún sendir til Íslands.
View this post on InstagramA post shared by Jennifer Garner (@jennifer.garner) on Feb 20, 2020 at 5:57pm PST