Snjöllustu (og fallegustu) eldhúsflísar sem sést hafa lengi

Ljósmynd/Click‘n Tile

Kannist þið við tilfinninguna þegar þið rekist á eitthvað svo snjallt og fallegt að hjartað bókstaflega tekur aukakipp? Einmitt það átti sér stað þegar undirrituð rakst á Click‘n Tile-flísarnar sem eru sérlega heppilegar fyrir eldhús og einmitt hugsaðar þannig.

Flísalögn getur oft nefnilega verið heilmikið mál og þú skiptir ekki svo glatt um skoðun. Fyrir fólk eins og mig er það fremur slæmt þar sem ég vil hafa möguleikann á því að breyta til þegar svo ber við. Click‘n Tile-flísarnar er hægt að breyta endalaust, það má þvo þær í uppþvottavélinni og samsetningarmöguleikarnir eru endalausir.

Click‘n Tile-veggflísarnar eru hugarfóstur hins danska Lars Thomsen. Hugmyndin varð til þegar hann sárvantaði einfalda og ódýra lausn þegar hann stóð í framkvæmdum heima hjá sér. Fyrsta skrefið er að líma bakplötuna á vegg, þú getur klippt og skorið bakplötuna til svo hún smellpassi í rýmið. Því næst raðarðu upp Click´n Tile-veggflísunum eins og þig langar, ef þú vilt færa eina flís tekurðu einfaldlega sogklukkuna og smellir henni af. Það gerist varla einfaldara! Með þessu móti gerir þú þér kleift að setja svip á heimilið án þess að leggjast í framkvæmdir. Click‘n Tile-veggflísarnar eru 100% endurvinnanlegar svo ef þú hefur fengið nóg af ákveðnum lit geturðu losað þig við þær í endurvinnslunni með góðri samvisku. Enn betra væri þó að geyma flísarnar því það er aldrei að vita hvaða litasamsetning þér dettur í hug næst!

Veggflísarnar frá Click‘n Tile eru úr plasti og mega því fara í uppþvottavélina, þó er mælt með að passa hitastigið sem þvegið er á. Einnig er hægt að strjúka bara af þeim með vatni og mildum uppþvottalegi. Hver flís er 10 cm á breidd og 10 cm á lengd. Þegar búið er að smella flísinni á bakplötuna er samanlögð þykktin u.þ.b. 8,2 mm. Þær henta í öll rými (já, meira að segja á bak við helluborðið!) að baðherbergi, sem gólfefni og utandyra frátöldu og það tekur um 20-30 mínútur að smella flísum upp á límda bakplötu í fullri stærð. Ef flís passar ekki í horn eða utan um innstungu er ekkert mál saga hana til og í sundur. Þar að auki er ekkert mál að setja upp hillur eða snaga á vegg þar sem Click‘n Tile-flísar eru nú þegar. Það þarf bara að ganga úr skugga um að búið sé að bora hol í flísina og bakplötuna undir henni, þá þarf líka að passa að skrúfan sé boruð vel inn í vegginn þar undir.


Kosturinn við Click‘n Tile-veggflísarnar er að þú þarft ekki að ganga í framkvæmdir, með því að setja upp bakplötuna á vegg opnarðu fyrir möguleikann á því að breyta flísalitum og/eða munstrum eftir stund og skapi. Það er jafnvel hægt að líma bakplötuna yfir hefðbundnar flísar, glerjaðar eða hráar. Byrjað er á því að spartla límið á svæðið sem flísarnar eiga að vera á, því næst er bakplatan klippt í rétta stærð og svo lögð yfir límið á veggnum. Strjúktu yfir bakplötuna svo öllum mögulegum loftholum sé ýtt undan plötunni. Því næst geturðu byrjað að smella veggflísunum þínum upp.


Sjálfbærni og umhverfismeðvitund er ofarlega í huga fólksins á bak við Click‘n Tile og starfa þau eftir R-einkunnarorðunum þremur; reduce, reuse og recycle. Reduce: Það fer mun minni orka í framleiðslu veggflísanna frá Click‘n Tile en hefðbundinna flísa þar sem flestar flísar þarf að brenna við allt að 1.300 gráður. Þar að auki eru Click‘n Tile-flísarnar 4-10 sinnum léttari en hefðbundnar flísar og losa því minni koltvísýring við flutning á hvern kílómetra. Reuse: Það er hægt að nota flísarnar aftur og aftur og aftur. Recycle: Aftan á flísunum má sjá endurvinnslumerkið sem þýðir að auðvelt er að sjá úr hvaða gerviefnum varan er búin til. Með þeim hætti getum við endurunnið flísarnar á réttan hátt án þess að hafa enn neikvæðari áhrif á umhverfið en við höfum nú þegar. Smelliplatan er búin til úr sama efni og flísarnar, þar með geta starfsmenn Click‘n Tile nýtt afföll veggflísanna í útbúnað á nýjum smelliplötum og þar með komist hjá sóun. Gallaðar flísar eru mölvaðar í duft og endurnýttar.

Click‘n Tile-flísarnar fást í Kokku.

Ljósmynd/Click‘n Tile
Ljósmynd/Click‘n Tile
Ljósmynd/Click‘n Tile
Ljósmynd/Click‘n Tile
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert