Naan-pítsa með tandoori-kjúklingabaunum og grænmeti

Ljósmynd/Valgerður Guðmundsdóttir

Hér erum við að tala um sjúklega spennandi útgáfu af hinni klassísku föstudagspítsu. Auðvitað má setja hvað sem er á naan-brauðið en þetta er samt vel þess virði að prófa og við hvetjum ykkur eindregið til þess. Það er Valgerður Guðmundsdóttir á GRGS.is sem á þessa uppskrift.

Naan-pítsa með tandoori-kjúklingabaunum og grænmeti
  • 2 naan-brauð með hvítlauk og kóríander frá Pataks
  • 1 dós kjúklingabaunir
  • 1 dl Pataks tandoori paste
  • 2 msk. hrein jógúrt
  • 200 g hreinn rifinn mozzarella-ostur
  • 1/2 sæt kartafla skorin í teninga
  • Paprika í bitum
  • Kirsuberjatómatar eftir smekk
  • Ferskt kóríander
Hvítlauksjógúrtsósa
  • 250 ml hrein jógúrt
  • 1 hvítlauksrif marið
  • 1 tsk. þurrkuð steinselja
  • salt og pipar eftir smekk
  • Blandið öllu saman í skál og kælið

Leiðbeiningar

1. Skolið kjúklingabaunirnar og þerrið aðeins, setjið þær í skál og blandið tandoori-mauki og hreinni jógúrt saman við. Látið bíða.

2. Skerið sætu kartöfluna í litla teninga og penslið með smá olíu. Bakið þar til teningarnir eru gegnumsteiktir.

3. Setjið naan-brauðið á bökunarplötu og stráið osti yfir.

4. Dreifið baununum ásamt smá marineringu, bökuðum sætum kartöfluteningum og papriku yfir og bakið í ofni við 200°C þar til gyllt að lit.

5. Dreifið kirsuberjatómötum og kóríander yfir og berið fram með hvítlaukssósunni.

Ég er alltaf að reyna að auka neyslu á grænmetisréttum en það er auðvitað algert skilyrði að þeir séu bragðmiklir og jafnvel smá djúsí. Það skemmir alls ekki fyrir ef það er fljótlegt að útbúa réttinn.

Þessi er einn af þeim. Bragðgott tilbúið naan-brauð frá Pataks í grunninn sem búið er að hlaða á mozzarella-osti, tandoori marineruðum kjúklingabaunum, grillaðri sætri kartöflu, papriku, kirsuberjatómötum, kóríander og hvítlauksjógúrtsósu. Virkilega bragðgott og fljótlegt.

Ljósmynd/Valgerður Guðmundsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert