Stórkostlegar nýjungar frá Nóa Síríus

Ljósmynd/Aðsend

Það heyrir alltaf til stórtíðinda þegar meistari Nói ákveður að gleðja landsmenn með einhverjum sjóðheitum nýjungum. Nói Síríus hefur verið einstaklega öflugur í skemmtilegri vöruþróun þar sem gamalt og nýtt mætast á undursamlegan hátt og hér er engin undantekning á. Nói Síríus kynnir til leiks þrjár nýjar vörur sem allar eru hver annarri girnilegri.

Ljósmynd/Aðsend

Nóa Vegan Trítlar – í dag er hlaupársdagur og hvað er betra en að fagna hlaupári með nýju hlaupi? Til að mæta ört stækkandi hópi grænkera hefur Nói Síríus sett á markað Vegan Trítla! Þessir Trítlar eru ótrúlega bragðgóðir og ættu því að gleðja marga, ekki bara þá sem eru vegan, því eru um ræða geggjaða viðbót við flottu Nóa Trítla línuna.

Ljósmynd/Aðsend

Nóa Krisp er nýtt vörumerki hjá Nóa Síríus. Silkimjúkt rjómasúkkulaði með stökkum krispkúlum. Þetta er æðislegt súkkulaði fyrir alla fjölskylduna. Það þekkja margir Krisp-hnappana sem fást í nammibörum landsins og eru mjög vinsælir, nú hefur krispið fengið sitt eigið vörumerki og einkennandi útlit. Fyrsta varan er súkkulaðiplata með extra mikið af krispi og við megum eiga von á að sjá fleiri vörur undir þessu vörumerki bætast við í framtíðinni, en fljótlega kemur á markað Nóa Krisp páskaegg!

Ljósmynd/Aðsend

Nóa Lakkrís Chiliperlur  — þetta er vara sem hefur fengið ótrúlega góðar viðtökur. Sterkar lakkrís chiliperlur hjúpaðar með hvítu súkkulaði og pipardufti, bragðast eins vel og það hljómar! Hér mætist sterkt og sætt í geggjaðri blöndu. Þessi vara kemur aðeins í takmarkaðan tíma en við hjá Nóa Síríus höfum ótrúlega gaman af því að sýna hvað vöruþróunarteymið hjá Nóa Síríus hefur upp á að bjóða og þetta er liður í því. Það má því enginn láta þetta fram hjá sér fara!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert