Snjalla leiðin til að þrífa kaffivélina

Við rákumst á þetta snjalla ráð um daginn og líst nokkuð vel á. Hér er átt við hefðbundnar kaffivélar og jafnvel þessar fínu sem hleypa vatni í gegnum sig.

Það eina sem þarf er að blanda vatni og ediki saman til helminga og láta renna í gegnum vélina — rétt eins og verið væri að hella upp á kaffi. Ef um er að ræða virkilega fansí og sjálfvirka vél gætur þú þurft nokkrar tilraunir en það borgar sig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert