Pastarétturinn sem sú yngsta kolféll fyrir

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér er uppskrift úr smiðju Berglindar Hreiðars á Gotteri.is en hún segir að allir í fjölskyldunni hafi elskað hann og sú yngsta, sem sé mikill gikkur, hafi kolfallið fyrir honum. 

Spicy tagliatelline

  • 500 g De Cecco Tagliatelline
  • um 300 g tígrisrækja (lítil) frá Sælkerafiski
  • um 300 g skelflettur humar frá Sælkerafiski
  • 4 hvítlauksrif (söxuð smátt)
  • 3 msk. smjör
  • 3 msk. Hunt's-tómatpaste
  • 1 msk. Blue Dragon Minced hot chili
  • 600 ml rjómi
  • 150 ml vatn
  • 2 msk. humarkraftur frá Oscar
  • parmesanostur
  • 70 g Philadelphia-rjómaostur
  • 1 msk. ferskt saxað timían
  • 1 msk. fersk söxuð steinselja
  • 1 tsk. þurrkað óreganó
  • Filippo Berio-ólífuolía til steikingar
  • salt og pipar
  1. Skolið og þerrið bæði rækjur og humar, leggið til hliðar.
  2. Hitið um 2 msk. af smjöri á pönnu og setjið helming hvítlauksins út í og steikið í um eina mínútu.
  3. Bætið þá rækjunum saman við og því næst humrinum, veltið í örfáar mínútur eða þar til rækjurnar verða bleikar. Takið þá af pönnunni og geymið þar til síðar.
  4. Bætið nú um 1 msk. af smjöri á pönnuna ásamt smá ólífuolíu og steikið restina af hvítlauknum þar til hann fer aðeins að brúnast.
  5. Bætið þá tómatpaste, maukuðu chili, rjóma, vatni, humarkrafti, rjómaosti og um 3 msk. af rifnum parmesanosti á pönnuna.
  6. Hrærið öllu saman þar til ljósbleik og kekkjalaus sósa hefur myndast. Bætið kryddinu þá út í og smakkið til með salti og pipar.
  7. Sjóðið tagliatelline í 5 mínútur, sigtið vatnið frá og hellið að lokum á pönnuna og hrærið öllu saman.
  8. Á meðan tagliatelline sýður má bæta humri og rækjum aftur á pönnuna (í sósuna) og setja hvítlauksbrauðið í ofninn (sjá uppskrift hér að neðan).

Hvítlauksbrauð

  • 1 x snittubrauð
  • Filippo Berio-ólífuolía
  • hvítlauksrif
  • rifinn ostur
  • salt og pipar
Aðferð:
  1. Skerið snittubrauð á ská í sneiðar (10-12 stk), penslið með ólífuolíu, nuddið með hvítlauksrifi, rífið ost yfir og saltið og piprið örlítið.
  2. Bakið við 200°C í nokkrar mínútur eða þar til osturinn fer að gyllast.
  3. Hægt er að bera sneiðarnar fram heilar eða skera þær í tvennt.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert