Brómberja-Moscow mule sem slær öll met

Ljósmynd/Linda Ben

Hvað er betra en ljúffengur Moscow mule? Nákvæmlega ekkert! Hér kemur einn sjóðheitur (eða ískaldur) með brómberjum úr smiðju Lindu Ben.

Brómberja-Moscow mule

Uppskrift miðast við 1 glas

  • 1 skot (30 cl) vodka
  • 5 brómber (+ fleiri til að skreyta með)
  • safi úr ¼ límónu
  • klaki
  • engiferbjór
  • minta (sem skraut, má sleppa)

Aðferð:

  1. Setjið vodka og brómber í koparbolla, kremjið brómberin ofan í bollanum.
  2. Kreistið límónu út í og fyllið bollann af klaka, hellið engiferbjór yfir.
  3. Skreytið með brómberjum og mintu.
Ljósmynd/Linda Ben
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert