Krispí kjúklingaborgari drauma minna

Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Hér erum við með hreinræktaða hólí mólí-uppskrift en það er gífuryrði sem við notum yfir sérlega girnilegar uppskriftir. Þessi dásemd kemur úr smiðju Berglindar Guðmunds á GRGS.is og við hvetjum ykkur til að prófa.

Stökkur nachoskjúklingaborgari

  • 700 g kjúklingalæri frá Rose Poultry
  • 60 g hveiti
  • 60 g nachosflögur, t.d. frá Mission
  • 40 g brauðrasp, mæli með Panko
  • 2 tsk chilikrydd
  • 1 tsk kummín
  • 1 tsk salt
  • ½ tsk paprikukrydd
  • ½ tsk hvítlauksduft
  • pipar
  • 1 egg
  • 60 ml safi úr jalapenokrukku
  • olía
  • salt og pipar

Annað

  • Hamborgarabrauð
  • guacamole
  • rauðlaukur
  • salat
  • Heinz-majones

Leiðbeiningar

  1. Setjið hveiti í eina skál.
  2. Látið egg og safa frá jalapeno í aðra skál og hrærið saman.
  3. Í þá þriðju setjið þið muldar nachosflögur, brauðrasp, chilíkrydd, kummín, salt, paprikukrydd, hvítlauksduft og pipar og blandið vel saman.
  4. Dýfið kjúklingalæri fyrst í hveiti, þá eggjablönduna og að lokum í nachosmulninginn. Setjið á bökunarplötu með smjörpappír og dreypið smá af ólífuolíu yfir kjúklinginn. Endurtakið með hin kjúklingalærin.
  5. Eldið í 210°C heitum ofni í 25-30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður.
  6. Hitið hamborgarabrauð og smyrjið með ríflegu magni af majonesi. Setjið meðlæti að eigin vali á brauðið og endið með kjúklingnum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert