Eva Laufey með „pop-up" á Shake&Pizza

Eva Laufey og Jóhannes Ásbjörnsson.
Eva Laufey og Jóhannes Ásbjörnsson. Ljósmynd/skjáskot

Að sögn Jóhannes Ásbjörnssonar, eins eigenda Shake&Pizza, er mikil ánægja með samstarfið svo ekki sé fastar að orði kveðið. „Við erum stolt af því að fá snilli Evu Laufeyjar lánaða og útkoman er betri en nokkur þorði að vona. Pítsurnar eru hver annarri betri og aðdáendur Evu Laufeyjar geta loksins smakkað mat frá henni á veitingastað.“

Evu Laufeyju þarf vart að kynna fyrir landsmönnum enda er hún sannur ástríðukokkur sem hefur deilt uppskriftum sínum og aðferðum í gegnum árin á bloggsíðu sinni, í sjónvarpsþáttum og með útgáfu matreiðslubóka. „Það var ótrúlega gaman að vinna þetta verkefni með Shake&Pizza. Ég hef alltaf gert mjög sérstakar pítsur heima fyrir sem fjölskylda og vinir hafa tekið miklu ástfóstri við. Það má segja að ég sé búin að koma þessum uppáhaldspítsum mínum á matseðil Shake&Pizza, segir Eva Laufey.

Fjölbreyttar og spennandi pítsur sem ekki hafa sést áður

Pítsurnar fjórar eru afar frumlegar og spennandi, og nöfnin á þeim líka. Mexíkóska pítsan Eva Sombrero er til að mynda með sýrðum rjóma, mexíkóosti og Tex mex-kjúklingi og toppuð með chili majói. Indverska pítsan Eva Masala er með kjúklingi í heimagerðri Tikka Masala-sósu, feta osti og ferskum kóríander. Svo er það ostapítsan Ost við fyrstu sýn og sveppapítsan sem hefur fengið nafnið Sveppi Krull. „Við getum eiginlega ekki beðið eftir því að leyfa fólki að smakka. Ég held persónulega að indverska pítsan eigi eftir að slá eftirminnilega í gegn. Hún er „next level“ eins og unglingarnir segja,“ segir Jóhannes.

Hér má sjá skemmtilegt myndband frá þróunarvinnunni við pizzurnar:

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert