Heimagerð pítsa með æðislegum botni

Ljósmynd/Snorri Guðmundsson

Snorri á Matur & myndir er hér með pítsu uppskrift sem hann segir mjög einfalda en skili æðislegum pítsabotni. „Hún krefst smá þolinmæði þar sem deigið þarf að taka sig í 2 daga áður en pizzurnar eru bakaðar. Allt vel þess virði samt," segir Snorri.

„Mistökin sem sumir gera er að hlaða allt of mikilli sósu og áleggi á pizzurnar sínar en það getur orðið til þess að pizzan bakist illa og verði of blaut í miðjunni. Minna getur nefnilega oft verið meira þegar kemur að því að baka sér hina fullkomnu pizzu."

Pizza með Ítölsku salami, rauðlauk, rósmarín og heimalagaðri pizzasósu

Fyrir 2 pizzur:

  • Brauðhveiti, 420 g + smá meira til að vinna með
  • Sykur, 10 g
  • Borðsalt, 7 g
  • Þurrger, 7 g
  • Ólífuolía, 2 msk.
  • Vatn, 280 g
  • San Marzano tómatar, 1 dós
  • Basil, 1 stilkur + lauf
  • Hvítlauksrif, 1 stk lítið
  • Hunang, 1 tsk.
  • Piccante, Sterk Ítölsk salami, 75 g / Tariello, fæst í Hagkaup
  • Rauðlaukur, ½ lítill
  • Rósmarín, 1 stór stilkur
  • Mozzarellakúla, 1 stk.
  • Chilifræ, eftir smekk
  • Parmesanostur, eftir smekk

Aðferð:

  1. Hitið vatnið í um 30-40 sek í örbylgjuofni þar til það er orðið vel volgt en ekki heitt.
  2. Setjið hveiti, sykur, salt og þurrger í matvinnsluvél og látið vélina ganga í stuttum hrinum í 4-5 skipti þar til allt hefur samlagast vel. Hellið vatni og ólífuolíu yfir hveitiblönduna og látið vélina ganga samfleytt í 15 sek þar til deigkúla hefur myndast. Látið vélina svo ganga í 15 sek til viðbótar.
  3. Stráið smá hveiti á borð og takið deigið úr matvinnsluvélinni. Hnoðið deigið í stutta stund og myndið úr því kúlu. Spreyið eða smyrjið stóra skál með olíu og færið deigið í skálina. Hyljið með matarfilmu og setjið í kæli í 2 sólarhringa.
  4. Takið deigið úr kæli 2 klst áður en baka á pizzurnar. Skiptið deiginu í tvennt og myndið úr því 2 kúlur. Færið kúlurnar í skálar og hyljið með matarfilmu. Látið deigið jafna sig við stofuhita í amk 2 klst.
  5. Stillið ofn á 250 °C með yfir og undirhita og setjið bökunarplötu eða pizzastein inn í ofninn til þess að hitna á meðan unnið er í öðru.
  6. Setjið smá olíu í lítinn pott og stillið á miðlungshita. Pressið hvítlauksrif saman við og steikið í um 1 mín eða þar til hvítlaukurinn er farinn að ilma. Kremjið San Marzano tómatana með höndunum og bætið út í pottinn ásamt vökvanum úr dósinni, basil stilknum og 1 tsk af hunangi. Náið upp suðu og lækkið svo hitann svo það malli hraustlega í pottinum. Látið malla í um 15 mín eða þar til sósan þykkist aðeins og smakkið svo til með salti.
  7. Sneiðið salami í þunnar sneiðar, saxið rauðlauk gróflega og týnið rósmarín laufin af stilknum og saxið gróflega.
  8. Notið hendurnar til þess að fletja botninn út í um 25 cm hring. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 2 cm af kantinum við sem mestu hnjaski, en þannig er gasinu sem hefur myndast yfir síðustu 2 daga ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist mun betur.
  9. Smyrjið sósu á botninn og rífið mozzarellaost yfir. Dreifið salami yfir ásamt rauðlauk, rósmarín, chiliflögum eftir smekk og rífið að lokum parmesanost yfir.
  10. Bakið á pizzasteini eða forhitaðri bökunarplötu í neðstu grind í ofni í um 8-10 mín.
Ljósmynd/Snorri Guðmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert