Skinkusnúðar með sjúklega djúsí ostafyllingu

Ljósmynd/Linda Ben

Þessir skinkusnúðar eru mögulega besta hugmynd sem þið hafið fengið í dag. Þeir koma úr smiðju Lindu Ben en hún segir að þeir sameini allt það besta úr skinkuhornum og pítsusnúðum.

„Deigið í snúðunum er mjúkt en ekki of þykkt svo fyllingin er í aðalhlutverki. Fyllingin samanstendur af fullt af rifnum osti, rjómaosti og skinku sem gerir snúðana alveg ferlega djúsí og góða!“

Snúðarnir eru mjög einfaldir. Deigið er fljótlegt en það er í góðu lagi að smella öllu í einu ofan í skálina og hræra saman. Svo er bara að fletja út og smella fyllingunni á, rúlla upp, skera og baka.

Skinkusnúðar með djúsí ostafyllingu

  • 2½ dl volg mjólk
  • 12 g þurrger
  • 2 egg
  • 1 msk hunang
  • 2 msk brætt smjör
  • 7-8 dl hveiti
  • ½ tsk salt
  • 300 g rjómaostur
  • 400 g rifinn ostur með pipar frá Örnu mjólkurvörum
  • 200 g skinka
  • óreganó

Aðferð:

  1. Hitið mjólkina svo hún sé um það bil 37°C. Bætið þurrgerinu út í og blandið saman. Hellið því svo yfir í hrærivélarskál.

  2. Hrærið eggin saman í skál og hellið þeim út í hrærivélarskálina ásamt hunangi og bræddu smjöri, blandið stuttlega saman.

  3. Setjið 7 dl af hveiti í skál ásamt salti, bætið um það bil helmingnum af hveitinu út í gerblönduna, blandið saman, setjið svo restina af hveitinu út í og hnoðið. Ef deigið er ennþá mjög klístrað bætið þá við u.þ.b. einum dl í viðbót af hveiti. Hnoðið í um það bil 4 mín. eða þar til þétt kúla hefur myndast.

  4. Leggið hreint viskastykki yfir skálina og látið hefast í um það bil klukkutíma eða þar til deigið hefur tvöfaldast að stærð.

  5. Stráið örlitlu hveiti á borð og fletjið deigið út þannig að það sé 40-50 cm á lengd og 20 cm á breidd.

  6. Smyrjið deigið með rjómaostinum og dreifið rifna ostinum yfir. Skerið skinkuna í mjög litla bita og dreifið yfir.

  7. Rúllið deiginu upp á langveginn, svo löng rúlla myndist. Smyrjið stórt eldfast mót með smjöri. Skerið rúlluna í um það bil 2 cm sneiðar og setjið ofan í eldfasta mótið, kryddið með örlitlu óreganói. Leggið viskastykkið yfir aftur og látið hefast í 20 mín.

  8. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, bakið í um það bil 35 mín. eða þar til snúðarnir eru orðnir gullinbrúnir.

Ljósmynd/Linda Ben
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert