Tívolíið í Köben opnar kaffihús

Tívolíið í Kaupmannahöfn var að opna sitt fyrsta kaffihús fyrir …
Tívolíið í Kaupmannahöfn var að opna sitt fyrsta kaffihús fyrir utan garðinn sjálfan. mbl.is/Tivoli PR

Tívolíið í Kaupmannahöfn var að opna sitt allra fyrsta kaffihús sem staðsett er fyrir utan lóðarmörk garðsins – eða á Vesterbrogade.

Kaffihúsið opnaði 11. mars sl. og kallast Créme by Nimb. Hér eru kokkar og bakarar frá Nimb sem standa vaktina og bjóða upp á girnilega rétti eins og þeim einum er lagið. Morgunmatur og bakkelsi er framreitt frá klukkan 07:30  á morgnana, ásamt gúrme-mat sem hægt er að taka með í take-away, eða njóta á staðnum en það hefur lengi verið draumur hjá stjórnendum Tívolí að geta boðið upp á freistingar fyrir utan hlið garðsins.

Þeir sem eiga næst leið á danskar slóðir geta rekið inn nefið á Créme by Nimb á Vesterbrogade 1.

Það verður enginn svikinn af kokteilum staðarins.
Það verður enginn svikinn af kokteilum staðarins. mbl.is/Tivoli PR
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert