Veitingamenn eru að bregðast við aðstæðum með ýmsum hætti og hafa Gleðipinnar ákveðið að hafa Aktu taktu í Skúlagötu opið allan sólarhringinn.
Að sögn Jóhannesar Ásbjörnssonar, talsmanns Gleðipinna, er þetta gert til að gefa viðskiptavinum færi á að versla allan sólarhringinn, þá ekki síst vaktavinnufólki.
„Við erum að upplifa afar sérstakar aðstæður í samfélaginu. Við sem og aðrir erum að leita allra leiða til að þjónusta okkar viðskiptavini sem best. Við höfum orðið varir við mikla aukningu í eftirspurn á Aktu taktu sem kemur ekki á óvart þar sem að þar er afgreitt er í gegnum lúgu,” segir Jóhannes en þessi breyting mun að öllum líkindum vara í einhverjar vikur eða eins og þarf að því kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Sértækar aðgerðir til að þjónusta viðskiptavini Gleðipinna í breyttum aðstæðum
Veitingastaðir Gleðipinna verða áfram opnir næstu vikurnar en fyrirmælum sóttvarnalæknis verður fylgt og staðan metin daglega. Ýmsar sértækar aðgerðir hafa verið ræstar til þess að veitt sem besta þjónustu í þessum sérstöku aðstæðum. Þar má nefna: