Áleggið sem börnin elska

Krakkar elska niðurskorin epli ofan á brauð.
Krakkar elska niðurskorin epli ofan á brauð. mbl.is/Colourbox

Stundum flækjum við hlutina allt of mikið fyrir okkur og getum verið dálítið vanaföst ef út í það er farið. Börn eru alls ekki í sama þankagangi og fullorðnir og auðvelda sér oftar lífið – t.d. með vali á áleggi.

Hver kannast ekki við að bjóða barninu upp á skinku, ost, kæfu og annað eins gúmmelaði ofan á brauð – þegar við allt eins getum skorið niður epli! Epli ofan á brauð er ótrúlega ferskt og bragðgott. Og ekki skemmir fyrir að borða ávöxt í leiðinni, sem sum okkar gera allt of lítið af.

Prófaðu að krydda eplin með tahini eða jafnvel hunangi og settu á ristað brauð eða jafnvel á pönnukökur. Þú munt komast á nýjar slóðir með bragðlaukana og það verður ekki aftur snúið.

mbl.is/Colourbox
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert