Dúnmjúkir marsípansnúðar

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Það er fátt skemmtilegra þessa dagana en að baka snúða og hér erum við með útgáfu frá Berglindi Hreiðars frá Gotteri.is sem vert er að prófa. Fyllingin er hrikalega spennandi og við hvetjum ykkur svo sannarlega til að prófa þessa snilld.

Dúnmjúkir marsípansnúðar

Deig

  • 120 ml volgt vatn (+ 1 msk sykur)
  • 1 pk þurrger (11,8 g)
  • 1 egg
  • 180 ml nýmjólk
  • 1 tsk. salt
  • 50 g sykur
  • 60 g brætt smjör
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 530 g hveiti

Aðferð:

  1. Setjið volgt vatn og 1 msk. sykur í skál, hrærið þurrgerinu saman við og látið standa í um 5 mínútur eða þar til þurrgerið fer að freyða.
  2. Setjið „krókinn“ á hrærivélarskálina og hrærið saman egg, mjólk, salt, sykur og bráðið smjör á lágum hraða þar til vel blandað.
  3. Bætið við gerblöndunni og vanilludropunum og blandið saman.
  4. Því næst má bæta hveitinu saman við í nokkrum skömmtum og hræra á meðalhraða í um 5 mínútur. Takið deigið næst úr hrærivélarskálinni og „klappið“ saman í góða kúlu (ef það er of klístrað má bæta örlitlu hveiti saman við en reynið að hafa það eins blautt og þið getið).
  5. Penslið skál með matarolíu og veltið deigkúlunni upp úr olíunni, setjið plast yfir skálina og látið hefast á hlýjum stað í tvær klukkustundir eða þar til deigið hefur um það bil tvöfaldað stærð sína.
  6. Hellið deiginu úr skálinni á vel hveitistráðan flöt og stráið smá hveiti yfir deigið sjálft. Þrýstið deiginu með fingrunum til beggja hliða þar til það hefur myndað rétthyrndan flöt sem er um það bil 30 x 40 cm.

Fylling

  • 80 g Odense-marsípan
  • 80 g smjör við stofuhita (+ 50 g brætt smjör til að pensla yfir deigið í lokin)
  • 80 g sykur
  • 80 g púðursykur
  • 2 msk. kanill
  • ½ tsk. möndludropar

Aðferð:

  1. Blandið öllum hráefnunum saman í skál, stappið saman með gaffli og dreifið jafnt úr yfir deigið.
  2. Rúllið þétt upp (frá lengri hliðinni). Skerið því næst í 12 jafna hluta (mér finnst best að skipta fyrst í miðju, þeim hlutum svo í tvennt og svo öllum í þrennt)
  3. Smyrjið skúffukökuform/eldfast mót vel með smjöri, raðið snúðunum með jöfnu millibili í formið, plastið og leyfið snúðunum að hefast aftur í um klukkustund.
  4. Hitið ofninn í 175 gráður.
  5. Penslið snúðana með bræddu smjörinu og bakið í um 20 mínútur eða þar til þeir eru orðnir vel gylltir. Takið snúðana úr ofninum og útbúið glassúrinn.

Glassúr

  • 60 g brætt smjör
  • 200 g flórsykur
  • 3 msk. rjómi
  • 1 tsk. vanilludropar
  • ½ tsk. möndludropar
  • ¼ tsk. salt
  • möndluflögur til skrauts

Aðferð:

  1. Pískið allt saman í skál og smyrjið yfir snúðana meðan þeir eru enn aðeins volgir.
  2. Stráið möndluflögum yfir til skrauts.

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...

Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert