Kvenfélagstertan sem Albert elskar

mbl.is/Albert eldar

Meðal góðra veitinga í stórglæsilegri kaffiveislu hjá kvenfélagskonum á norðanverðum Vestfjörðum var jarðarberjaskyrterta með kókosbollum. Það var sjálfur Albert Eiríks sem deildi uppskriftinni en einlægari aðdáanda íslenskra kvenfélaga er ekki hægt að finna.

„Ég þreytist seint á að dásama starf kvenfélaga um landið. Samfélagsbætandi félagsskapur og um leið uppbyggjandi á margvíslegan hátt. Við Bergþór hittum kvenfélagskonur á sameiginlegum fundi kvenfélagskvenna á norðanverðum Vestfjörðum. Þær komu með eitt og annað gómsætt á kaffihlaðborð á fundinn sem haldinn var í félagsheimilinu á Suðureyri. Í stuttu máli: ég bara elska kvenfélagsfundi og kaffimeðlætið,“ segir Albert en heimasíðuna hans er hægt að nálgast HÉR.

Jarðarberjaskyrterta með kókosbollum

Botn

  • 1½ pakki af Lu Bastogne-kexi
  • 100 gr smör brætt

Myljið kexið og hellið smjörinu út í, setjið í form og svo í ísskáp.

  • 1 stór dolla af jarðarberjaskyri
  • ½ lítri rjómi
  • 3 kókosbollur

Þeytið rjómann og blandið skyrinu saman við og kremjið kókosbollurnar í skyrblöndunni með sleikju.

Setjið ofan á botninn og geymið í ísskáp í allavega klukkutíma.

Þegar kakan er skreytt eru sett jarðarber, bláber, kókosbolla og bræddu súkkulaði hellt ofan á.

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...

Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl

Formenn eða fulltrúar félaganna með alberteldar-svuntur. Að kaffinu stóðu Kvenfélögin …
Formenn eða fulltrúar félaganna með alberteldar-svuntur. Að kaffinu stóðu Kvenfélögin Ársól á Suðureyri, Hvöt í Hnífsdal, Brynja á Flateyri, Von á Þingeyri og Brautin í Bolungarvík. Frá vinstri: Þorgerður frá Von, Oddný frá Ársól, Esther frá Hvöt, Sigrún frá Brautinni og Ágústa frá Brynju. mbl.is/Albert eldar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert