Heilsteiktar lambakórónur með kryddhjúpi

Ljósmynd/Hanna

Eitt af því sem klikkar aldrei er góð lambasteik og hér er það hin eina sanna Hanna sem eldar eina slíka af sinni alkunnu snilld.

„Fyrir 20 árum fékk ég þennan rétt í afmæli og hef verið lengi á leiðinni með að elda hann sjálf. Það tók smátíma að hafa uppi á uppskriftinni en loksins fannst hún í gömlu lúnu uppskriftabókinni minni. Um er að ræða sænska úrklippu en líklega er hún úr áratuga gömlu tímariti frá mömmu. Hafði þennan flotta rétt núna um áramótin en hef einnig boðið upp á hann í matarboðum – auðveldur og góður. Eldunartíminn getur verið aðeins mismunandi eftir bitastærðum en best er að nota hitamæli til að fá réttu steikinguna – það er smekksatriði hversu mikið kjötið á að vera steikt – ég vil hafa það frekar rautt. Kórónur eru kannski ekki efst á óskalistanum þessa dagana en það er alveg satt … að þessar gleðja bragðlaukana.“

Heilsteiktar lambakórónur með kryddhjúpi

Athuga: Mikilvægt að taka kjötið úr kæli töluvert áður en það er matreitt þannig að það sé ekki of kalt þegar það er sett á pönnuna. Einnig er gott að taka það úr umbúðum og leyfa því að jafna sig. Stundum læt ég það standa í 3-4 tíma áður en það er matreitt og tek það þá úr umbúðunum a.m.k. klukkustund áður.

Hráefni

Kryddlögur – ekki er nauðsynlegt að nota ferskar kryddjurtir en fallegt að hafa 1-2 af kryddjurtunum ferskar

  • 2 msk. brauðrasp
  • 2 msk. fersk steinselja – söxuð
  • ½ tsk. þurrkað estragon
  • ½ tsk. þurrkað timían
  • ½ tsk. þurrkað majoram
  • ½ tsk. þurrkað rósmarín
  • 1-2 hvítlauksrif – saxað
  • salt og pipar

Kjöt

  • U.þ.b. 2 kg lambakórónur
  • Smjör til steikingar

Verklýsing

Kryddlögur – ef notað er ferskt krydd þarf meira magn af því (u.þ.b. msk í stað tsk)

Öllu blandað saman í skál

Kjöt

  1. Ofninn hitaður í 250°C (yfir- og undirhiti)
  2. Smjör brætt á meðalstórri steikarpönnu sem þolir að fara í ofn
  3. Þegar smjörið er orðið vel heitt eru lambakórónurnar settar á pönnuna – fituröndin látin snúa niður Ath. mikilvægt að pannan sé vel heit þannig að litur komi strax á fituröndina – ef það heyrist gott steikingarhljóð þá er pannan vel heit. Stundum höfum við látið kjötið steikjast aðeins í 1-2 mínútur
  4. Pannan sett síðan beint inn í ofn (miðjan ofninn) í 5 mínútur – tekin út og kórónunum snúið við – látnar steikjast í 5 mínútur í viðbót inni í ofni
  5. Kryddjurtum stráð yfir – ofan á fituröndina – og vökvanum á pönnunni ausið yfir kjötið
  6. Steikt til viðbótar í 2-4 mínútur. Ath. nú er gott að setja kjöthitamæli í kjötið – steikingartíminn er háður þykkt kjötsins. Þegar hitamælirinn sýnir 50-52 gráður er pannan tekin úr ofninum og kjötið sett á skurðarbretti – mikilvægt að láta kjötið standa og jafna sig í 5-10 mínútur. Þá er gott að nota tímann og skerpa á hitanum á sósunni og kartöflunum.
  7. Fallegt að skera hverja kórónu í sneiðar þannig að eitt bein fylgi hverri sneið – fitan er ómissandi með og til að kóróna góðan bita er gott að naga beinið vel.

Meðlæti:

Sósa: Mér finnst best að bjóða upp á sveppasósu með kjötinu – hægt að hafa hana tilbúna áður en kjötið er steikt og þá er bara eftir að skerpa á hitanum áður en hún er borin fram. Einnig er einfalt að setja 1 dl vatn á pönnuna og láta það aðeins sjóða upp. Krydda með salti og hvítum pipar – hellt í skál.

Kartöflur: Gott að hafa kartöflur með eins og t.d. kartöfluskífur eða -strimla, hasselback-kartöflur eða ofnbakaðar kartöfluskífur með chili og parmesan. Stundum hef ég forsoðið kartöflur og steikt þær á pönnu upp úr smjöri og kryddað með paprikukryddi, salti og pipar.

Salat: Ferskt salat

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...

Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert